Hugleiðingar veðurfræðings
Það verður breytileg átt í dag, víða 3-8 m/s. Á Suðausturlandi verður heldur hvassara, norðaustan 5-10. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt til að byrja með en sums staðar gæti verið þokukent í fyrstu. Eftir hádegi myndast nokkrar skúrir á víð og dreif á sunnan- og vestanverðu landinu, annars bjart og þurrt. Hiti 10 til 18 stig.
Norðlægari á morgun, og bjart með köflum en enn stöku skúrir á suðvesturhorninu. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag verður bjartviðri en þykknar upp um sunnanvert landið seinnipartinn ásamt vaxandi austanátt og fer að rigna þar um kvöldið. Hiti 12 til 17 stig. Spá gerð: 07.08.2023 06:49. Gildir til: 08.08.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og bjart með köflum. Allvíða síðdegisskúrir sunnan og vestantil, og öflugar skúrir á Miðhálendinu en þokuloft sums staðar við norður – og austurströndina. Þykknar upp vestantil í nótt. Áfram líkur á síðdegisskúrum suðvestantil á morgun en léttir til á vestanverðu landinu annað kvöld. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Spá gerð: 07.08.2023 14:05. Gildir til: 09.08.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðvestan 5-10 m/s norðaustantil á landinu annars hægari breytileg átt en vaxandi austanátt við suðurströndina um kvöldið. Víða léttskýjað en þykknar upp sunnan og vestantil síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast vestantil.
Á fimmtudag:
Suðaustan eða austan 5-10 m/s en 10-15 m/s við suðurströndina. Samfelld rigning sunnantil í fyrstu síðan súld eða rigning með köflum sunnan og vestantil en bjartviðri um landið norðan og austanvert. Hiti 12 til 19 stig.
Á föstudag:
Fremur hæg austlæg eða breytileg átt, en austan 5-13 m/s syðst. Skýjað með köflum eða bjartviðri en líkur á þokulofti suðaustantil og á Austfjörðum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast suðvestanlands en svalara í þokuloftinu austantil.
Á laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Bjartviðri en þokuloft með suður og austurströndinni. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast inn til landsins.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðlæga átt, 5-10 m/s. Skýjað með köflum eða bjartviðri en líkur á þokulofti víða við sjávarsíðuna um kvöldið. Kólnar heldur í veðri.
Spá gerð: 07.08.2023 09:09. Gildir til: 14.08.2023 12:00.