Landssamband smábátaeigenda hefur tekið saman yfirlit yfir veiðar smábáta í sumar
,,Tölur um afla á strandveiðum liggja nú fyrir. Til að auðvelda mönnum upplýsingaleit hefur LS tekið saman í eina skrá tölulegar upplýsingar um veiðarnar í ár og í fyrra.
Helmingi fleiri bátar með yfir 30 tonn en í fyrra – 82 bátar náðu því marki
Misjafnt gengi milli svæða – bátar á A og B svæði með meiri afla en í fyrra, en minna hjá bátum á C og D svæði. Afli að meðaltali 17,8 tonn – mestur á svæði A, 21,5 tonn.
9 bátar nýttu alla 48 dagana sem í boði voru, 23 bátar réru umfram þann fjölda í fyrra. Stóraukin veiði á ufsa – afli fór úr 355 tonnum í 609 tonn.
Bátar á svæði D voru með helming alls ufsaflans. Alls 548 bátar stunduðu strandveiðar í ár sem er fækkun um 46 milli ára.“ Segir um aflatölur sumarsins.
Sjá nánar : Sjá tölulegar upplýsingar um strandveiðar
Strandveiðar – aflahæstir, veiði í hverjum mánuði.
Umræða