• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Plastúrgang er að finna um nær allan sjó

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Á seinustu 25 árum hefur plastframleiðsla í heiminum rúmlega þrefaldast og ef  áfram heldur sem horfir kann plast í heimshöfunum að vega meira en fiskistofnar árið 2050 (World Economic Forum 2016). Plastúrgang er að finna um nær allan sjó og hann hefur borist til fjarlægra staða eins og heimskautanna og djúpsjávar heimshafanna. Plast leysist ekki upp heldur brotnar það niður í smærri og smærri agnir. Áhrifin sem plast hefur á umhverfi sjávar eru bæði margbreytileg og afdrifarík.
Plastúrgangur endar að stórum hluta í heimshöfunum og getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarlífverur. Þær geta fest sig í gömlum netum, tógum eða plastfilmum, kafnað eða étið ýmis konar plast í misgáningi. Lítið er enn sem komið vitað um það hvernig örplast berst um flókinn fæðuvef heimshafanna en rannsóknir hafa sýnt að plastagnir hafa áhrif á ýmsar sjávarlífverur m.a. á efnaupptöku á frumustigi, eru bólguvaldar, valda minnkun á fæðunámi og hafa áhrif á innkirtlastarfsemi (Wright et al. 2013a; 2013b). Þetta er m.a. vegna þess að plastagnir geta innihaldið eiturefni sem notuð eru við framleiðsluna til að tryggja sveigju, varanleika eða eldtefjandi efni.
mynd af stöðvum sem plast hefur fundist á í kringum Ísland
Hafrannsóknastofnun hefur á undanförnum árum skráð kerfisbundið magn sjáanlegs plasts sem kemur í veiðarfæri við rannsóknaveiðar stofnunarinnar.
Mikilvægt er að geta greint uppruna plastsins til að hægt sé að beina sjónum í rétta átt þegar kemur að því að fyrirbyggja að plast berist í hafið.
Megnið af því plasti sem kemur í veiðarfæri við rannsóknaveiðar stofnunarinnar er tengt sjávarútvegi. Algengast er að finna spotta af ýmsu tagi og netadræsur (blátt og svart á myndinni) en einnig alls kyns brot úr fiskikörum og slíku (rautt á myndinni).
Rusl af öðrum uppruna en sjávarútvegi (grænt) kom í minna mæli í veiðarfæri en var í þó nokkrum þéttleika á sumum stöðum.
Heimildir:
World economic forum. 2016. The new plastic economy – rethinking the future of plastics. World economic forum industry agenda.
Wright S.L., Rowe D., Thompson R.C. and Galloway T.S. 2013a. Microplastic ingestion decreases energy reserves in marine worms. Curr Biology 23, 1031-1033.
Wright S.L., Thompson R.C. and Galloway T.S. 2013b. The physical impacts of microplastics on marine organisms: A review. Environmental pollution 178, 483-492.
minnka losun á plasti tengdu sjávarútvegi í hafið í kring um Ísland.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Vændiskonur á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar

    259 deilingar
    Share 104 Tweet 65
  • Umferðarslys í Garðabæ – einn slasaður og fluttur á slysadeild

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Veitur hækka hitaveitugjald um 50%

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Grunnur steyptur að undir­stöð­um Ölfusár­brúar

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?