Allt í einu heyrðist mikill umgangur og læti í bakgrunni eins og ruðst væri inn í herbergið þar sem Willy var staddur og svo slitnaði símtalið. Síðan hefur ekkert spurst til hans.
WILLY PETERSEN – hvarf þann 4. september 1974
Bjarki Hólmgeir Halldórsson tók efnið saman
Fjórir menn hurfu sporlaust árið 1974. Tvö þessara mála urðu að einni umfangsmestu og umdeildustu sakamálarannsókn síðustu aldar. Þar er átt við hin svo kölluðu Guðmundar og Geirfinnsmál. Einnig hvarf Bjarni Matthías Sigurðsson, aldraður maður er hann var í berjamó með fjölskyldu sinni á Snæfellsnesi á haustdögum þetta ár. Í september 1974 hvarf Færeyskur sjómaður í Reykjavík og hefur mál hans hlotið talsvert minni umfjöllun en þau sem minnst er á hér að ofan.
Willy Petersen, sjómaður frá Færeyjum var fæddur 13. júní 1930 í Danmörku. Hann flutti til Íslands 1951 og starfaði hér sem verkamaður og sjómaður. Hann bjó um tíma með íslenskri konu en sumarið 1974 slitnaði upp úr þeim hjúskap.
Frændi Willy fékk símtal frá honum 4. september 1974. Hann segir að Willy hafi verið mikið niðri fyrir og viljað segja sér eitthvað. Símtalið varð hinsvegar ekki langt. Allt í einu heyrðist mikill umgangur og læti í bakgrunni eins og ruðst væri inn í herbergið þar sem Willy var staddur og svo slitnaði símtalið. Síðan hefur ekkert spurst til hans.
Þrátt fyrir eftirgrenslan ættingja Willy og lögreglu fundust aldrei neinar upplýsingar sem varða hvarf hans og urðu til þess að menn væru einhverju nær um afdrif hans. Ekki virðist hafa farið fram formleg leit að neinu marki sem heitið getur.
Í málsgögnum Guðmundar og Geirfinnsmálsins er að finna gögn þar sem hvarf þessa færeyska sjómanns er hermt upp á þá sem dæmdir voru í því máli. Frásagnir þar að lútandi eru hinsvegar svo galnar eins og allflest í þeirri rannsókn að ekki verður sagt að mark sé á þeim takandi.
Willy var sagður nokkuð reglusamur. Hann var bláeygður, rúmlega meðal maður á hæð og kraftalega vaxinn.
Ekki er vitað hver verustaður hans var þegar hann hvarf nema að talið er að hann hafi verið staddur í Reykjavík þegar ofangreint símtal átti sér stað. Reistur hefur verið minningarsteinn til minningar um Willy Petersen í Gufuneskirjugarði.
Lögreglan tekur að sjálfsögðu við ábendingum um málið. Bjarki Hólmgeir Halldórsson tók efnið saman : Búir þú yfir upplýsingum eða vilt koma á framfæri ábendingu varðandi ofangreint, eða önnur mannshvörf er þér bent á að hafa samband með tölvupósti. Póstfangið er mannshvarf@gmail.com