Í morgun hófst vetrarstarf Miðflokksfélags Hafnarfjarðar þar sem Sigurður Þ. Ragnarsson bæjarfulltrúi Miðflokksins, flutti erindi sem var undir yfirskriftinni: Tillögur starfshóps um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar.
Að venju fór fundurinn fram í húsnæði félagsinns að Hjallahrauni 9. Líflegar umræður urðu um tillögurnar og að vonum fjölmargar skoðanir uppi um það hvernig fólk vill sjá miðbæinn sinn þróast í framtíðinni.
Sigurður Þ. Ragnarsson fór vandlega yfir tillögur að nýju skipulagi en lagði áherslu á að um væri að ræða hugmyndir en ekki fastmótað skipulag.
Sigurður Þ. Ragnarsson flutti hnitmiðaða kynningu fyrir gesti, með glærum, sem að sýndu þær hugmyndir sem eru uppi varðandi uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar.
Jafnframt sagði hann að kynningin væri í umsagnarferli og að fólk hefði enn tíu daga til þess að gera athugasemdir um hugmyndirnar á samráðsgátt og hvatti fólk til að kynna sér málið vel og koma með hugmyndir eða athugasemdir ef að áhugi væri fyrir því á samráðsgáttinni, innan tímamarka.
Ljóst er að um mikið byggingarmagn er um að ræða í miðbæ Hafnarfjarðar ef að hugmyndin skv. teikningum verður að veruleika og m.a. mun þá rísa fimm hæða hótel við Strandgötuna. Bílastæðin sem nú eru á svæðinu munu hverfa. Þá munu rísa nokkur hús við sjávarkambinn og Borgarlína mun taka sitt pláss skv. hugmyndum sem nú er verið að skoða svo eitthvað sé nefnt.
Það virðist vera sem að hugmyndin gangi að miklu leiti út á að sameina eldri og nýrri hús í miðbænum, vera með blandaða byggð og þjónustu. Þá var rætt um svæðið í kringum kirkjuna og að þar þyrfti að vera gott aðgengi fyrir fatlaða og eldra fólk.
Áhyggjur voru af því að ef að byggðar yrðu háar byggingar, mundu þær skyggja á útsýni og mynda skugga á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. Mætingin var mjög góð á fundinn og fjörugar umræður um þetta mikilvæga mál þar sem að fundargestir tóku virkan þátt í umræðum sem að Sigurður Þ. Ragnarsson stýrði af miklum myndarbrag.