• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lægð úr vestri nálgast

Lægð úr vestri nálgast

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. september 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú er dálítið lægðardrag yfir landinu. Vindur er með hægasta móti, en víða er súld eða rigning. Það dregur úr vætu eftir hádegi og dragið þokast til norðausturs.

Seinnipartinn í dag fer að nálgast lægð úr vestri og í kvöld má því búast við vaxandi sunnanátt á Suður- og Vesturlandi og það bætir í rigninguna þegar regnsvæði lægðarinnar nær landi.

Á morgun gera spár ráð fyrir að áðurnefnd lægð verði stödd skammt vestur af Breiðafirði og valdi suðvestan strekkingi eða allhvössum vindi. Með fylgir rigning eða skúrir, en norðaustan- og austanlands ætti að verða þurrt og bjart veður og þar verður jafnframt hlýjast, eða um 17 stiga hiti þar sem best lætur.

Veðurhorfur á landinu
Hæg breytileg átt og víða súld eða rigning, en lengst af þurrt vestanlands. Dregur úr úrkomu seinnipartinn. Vaxandi sunnanátt á Suður- og Vesturlandi í kvöld og fer að rigna.

Suðvestan 10-18 m/s á morgun og rigning eða skúrir, en bjartviðri norðaustan- og austanlands.

Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.
Spá gerð: 07.09.2023 10:04. Gildir til: 09.09.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Snýst í norðan 5-13 m/s, en vestlægari sunnanlands. Súld eða rigning á norðanverðu landinu, skúrir sunnantil fram eftir degi, en bjartviðri á Austfjörðum. Hiti 6 til 13 stig, svalast fyrir norðan.

Á sunnudag:
Austan og norðaustan 5-13 og víða rigning, en þurrt að kalla um landið norðanvert. Hiti frá 4 stigum í innsveitum fyrir norðan, upp í 11 stig syðst.

Á mánudag:
Norðlæg átt 5-10 og yfirleitt léttskýjað, en stöku skúrir syðst á landinu. Hiti 5 til 10 stig, en kaldara að næturlagi.

Á þriðjudag:
Breytileg átt og bjart að mestu en dálitlar skúrir á Vestfjörðum og syðst á landinu. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austlæga átt. Rigning á sunnan- og austanverðu landinu en annars bjart með köflum. Hiti 6 til 11 stig að deginum.
Spá gerð: 07.09.2023 08:30. Gildir til: 14.09.2023 12:00.

Umræða
Share16Tweet10
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?