• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 22. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

COVID-19: Takmarkanir innanlands framlengdar til 20. október

Tveimur til þremur vikum eftir afléttingu sóttvarnaaðgerða hefur smitum innanlands tekið að fjölga

ritstjorn by ritstjorn
7. október 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þess efnis hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og gildir hún til og með 20. október næstkomandi.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er þróun faraldursins rakin frá því að öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum hér á landi var aflétt 26. júní síðastliðinn og slakað á sýnatökum hjá farþegum á landamærunum. Sóttvarnalæknir bendir á að þessar tilslakanir hafi verið gerðar í ljósi þess að smit innanlands voru fátíð og um 70% þjóðarinnar fullbólusett.

Tveimur til þremur vikum eftir afléttingu sóttvarnaaðgerða hafi smitum innanlands tekið að fjölga, fjölgun hafi orðið á innlögnum á Landspítala og alvarleg veikindi aukist. Í þessari bylgju hafi smit og alvarleg veikindi verið algengari en áður hjá óbólusettum börnum og tvö alvarlega veik börn lagst inn á sjúkrahús.

Eins og sóttvarnalæknir rekur voru aðgerðir innanlands og á landamærum hertar í kjölfar fjölgunar smita og í kjölfarið fækkað þeim og eru nú um 20-60 á dag, breytilegt eftir daglegum fjölda tekinna sýna. Hann vísar til margvíslegra tilslakana hjá öðrum þjóðum þar sem breytilegt er hvort þær hafi leitt til aukinnar útbreiðslu.

Þá spái sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) og alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) aukinni útbreiðslu í byrjun vetrar og hafi hvatt þjóðir til að viðhafa áfram nauðsynlegar sóttvarnir, þar á meðal fjöldatakmarkanir, nándarreglu og notkunar andlitsgrímu við skilgreinda viðburði. „Í ljósi þróunar faraldursins erlendis og reynslunnar hérlendis af fullri afléttingu takmarkana þá tel ég varhugavert að slaka meira á þeim sóttvarnaaðgerðum innanlands en þeim sem nú eru í gildi“ segir í minnisblaði sóttvarnalæknis.

Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis leggur hann til að óbreyttar takmarkanir innanlands verði framlengdar í a.m.k. einn mánuð. Ráðherra fellst á framlengingu en telur rétt að sú ákvörðun verði endurskoðuð eftir hálfan mánuð.

  • Minnisblað sóttvarnalæknis

Discussion about this post

  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Greiða hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mikilvægum áfanga náð í undirbúningi Sundabrautar

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?