• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mikil slydda eða snjókoma á Norður- og Austurlandi á sunnudag og ekkert ferðaveður

Á sunnudag verður lægðin við austurströndina og dýpkar ört - Gul viðvörun: Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra og Austurland að Glettingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. október 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Það verður norðvestan strekkingur austantil á landinu í dag, en það lægir í öðrum landshlutum. Dálítil rigning eða slydda með köflum norðanlands, en bjart að mestu um landið sunnanvert. Hiti 1 til 10 stig mildast syðst. Á morgun kemur lægð inn á Grænlandshaf. Henni fylgir suðaustan kaldi eða stinningskaldi og rigning með köflum eða skúrir. Hiti 3 til 9 stig yfir daginn. Norðaustanlands verður heldur svalara og þar gæti úrkoman fallið sem slydda.

Á sunnudag verður lægðin við austurströndina og dýpkar ört. Þá er útlit fyrir að það gangi í norðan hvassviðri eða storm með mikilli slyddu eða snjókomu á Norður- og Austurlandi. Þar verður ekkert ferðaveður ef að líkum lætur. Sunnanlands verður úrkomulítið en þar gæti samt sem áður orðið mjög hvasst, til að mynda undir Vatnajökli.

Það er enn nokkur breytileiki í spám varðandi þetta veður, t.d. benda nýjustu spár til þess að vesturhluti landsins sleppi betur en útlit var fyrir í gær. Það gæti hins vegar hæglega breyst aftur og er fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám.

Gul veðurviðvörun: Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra og Austurland að Glettingi

Veðuryfirlit
300 km ANA af Langanesi er allvíðáttumikil 978 mb lægð sem þokast A og grynnist. Á Labradorhafi er vaxandi 1002 mb lægð á leið ANA.

Veðurhorfur á landinu
Norðvestan strekkingur austantil í dag, en lægir annars staðar. Lítilsháttar rigning eða slydda norðanlands, en bjart að mestu um landið sunnanvert.

Suðaustan 5-13 m/s á morgun og rigning með köflum eða skúrir, en sums staðar slydda norðaustanlands. Hiti 1 til 10 stig, mildast syðst.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðan 5-10 m/s og bjart að mestu, en lægir í dag. Suðaustan 8-15 og rigning seint í nótt, en sunnan 3-10 og skúrir á morgun. Hiti 3 til 7 stig.
Spá gerð: 07.10.2022 04:46. Gildir til: 08.10.2022 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Suðaustan og austan 8-15 m/s og rigning eða skúrir, en sums staðar slydda norðaustanlands. Yfirleitt hægari vindur eftir hádegi. Hiti 1 til 9 stig, svalast norðaustantil.

Á sunnudag:
Gengur í norðan og norðvestan 18-25 m/s með talsverðri eða mikilli slyddu eða snjókomu, en rigning á láglendi norðaustantil. Mun úrkomuminna sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast austast.

Á mánudag:
Minnkandi norðvestanátt og dregur úr ofankomu, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti um og yfir frostmarki.

Á þriðjudag:
Suðaustan- og austanátt og fer að rigna, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hlýnar talsvert.

Á miðvikudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir. Hiti 3 til 8 stig.

Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt og þurrt að kalla, en dálítil slydduél fyrir norðan. Kólnar í veðri.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?