Banaslys varð á sveitabæ í Norðfjarðarsveit síðdegis í dag. Maður á sjötugsaldri lést í slysinu. Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir klukkan fimm í dag.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að málið sé til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirliti og ekki hægt að gefa um það frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða