Fyrirtaka var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Birgir Halldórsson, einn fjögurra sakborninga í málinu, átt einn eftir að taka afstöðu til ákærunnar. Hann ræddi við dóminn gegnum fjarfundabúnað þar sem hann er í gæsluvarðhaldi og sagði að sér væri ómögulegt að játa sök samkvæmt þeirri verknaðarlýsingu sem lýst væri í ákærunni. Fjallað er ítarlega um málið á vef ríkisútvarpsins.
Verjandi Páls Jónssonar, timburinnflytjanda á sjötugsaldri, lagði fram beiðni um matsgerð þar sem farið var fram á að efnið yrði vigtað upp á nýtt. Það er hins vegar ekki hægt þar sem efnunum var eytt í Hollandi og því aðeins til sýni. Í ákæru saksóknara kom fram að heildarmagn væri 99,25 kíló og styrkleiki efnisins væri 81 til 90 prósent. Segir í fréttinni.
Fara á yfir það í næstu viku hvort sérfræðingur við Háskóla Íslands geti lagt mat á þyngdina út frá þeim sýnum sem til eru, meðal annars með tilliti til þess hvort efnið hafi verið blautt eða þurrt. Jafnframt var nefnt að fyrir dóminn kæmu hollensku tollverðirnir sem vigtuðu kókaínið á sínum tíma.
Kókaínið kom aldrei til Íslands. Hollenskir tollverðir í Rotterdam fjarlægðu efnið þar sem það hafði verið falið sjö trjádrumbum eftir ábendingu frá íslensku lögreglunni og var gerviefni sett í staðinn. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð verði strax í byrjun næsta árs að því er kemur fram í frétt ríkisútvarpsins.