Um leið og við þökkum fyrir viðskipti og áhuga á bílatilboðum Islandus, leitum við til þín vegna neyðarkalls sem var að berast okkur frá Palestínu í gegnum samtökin Friður 2000 sem Islandus hefur styrkt um árabil.
Í húsi Friðar 2000 í Reykjavík hefur undanfarna mánuði búið Palestínskur flóttamaður ásamt fjölskyldu sinni. Yousef Hamarsha horfir nú uppá ættingja og vini í Gaza hríðfalla í átakanlegu stríði og hryðjuverkum. Engum er hlíft, hvorki konum, gamalmennum né ungabörnum. Sprengjum rignir miskunnarlaust yfir íbúðarbyggðir.
Sumir eru grafnir lifandi undir rústunum, aðrir og þar á meðal ung börn sum nú munaðarlaus, eru lent á vergangi með lítið eða ekkert húsaskjól. Þeim sárvantar hlýjan fatnað og aðrar nauðsynjar til að lifa af veturinn sem er að hefjast í Gaza.
„Að samþykkja fórn barna á Gaza jafngildir uppgjöf mannkyns gagnvart mannúð“ segir talsmaður barnahjálpar S.Þ. og lýsir ferð á sjúkrahús þar sem hann sá móður gráta á meðan syni hennar blæddi út. Hvar sem við stöndum í stjórnmálum hljótum við að finna til samkenndar með ungum saklausum börnum sem áttu engan þátt í að skapa þetta ástand. Það væri ekki mannlegt að horfa uppá þetta aðgerðalaus.
Sumir muna kannski eftir friðarflugi jólasveinsins til Baghdad. Faðir ungrar stúlku skrifaði bréf til Guðs og bað um kraftaverk til að bjarga dauðvona dóttur sinni. Þremur dögum síðar lenti flugvél Friðar 2000 í Baghdad og flutti litlu stúlkuna ásamt foreldrum sínum á sjúkrahús í Amsterdam.
Nú er aftur beðið um kraftaverk Íslenska jólasveinsins. Heimsbyggðin hefur aldrei áður séð álíka hörmungar og nú dynur yfir börnin í Palestínu. Við biðlum til þín að taka á þessu með okkur og leggja þitt af mörkum til að koma á stað þjóðarátaki að senda flugvél með jólagjafir og hjálpargögn til Gaza.
Fyrstu orð Íslenska jólasveinsins er hann steig úr flugvél sinni í Baghdad voru: „Hættið að drepa börnin mín“.
Aldrei hefur verið jafn mikil þörf á þessum skilaboðum eins og nú um þessi jól í Ísrael og Palestínu.
Islandus mun tvöfalda stuðning sinna viðskiptavina við átakið. Sú upphæð sem þú sérð þér fært að leggja til verður tvöfölduð með mótframlagi frá Islandus Europe ehf. Smelltu hér til að styðja flugið
Á síðunni er einnig að finna upplýsingar um móttöku jólagjafa fyrir börnin í Palestínu.
Með kærri kveðju og þökkum
Islandus Bílar
Þessi póstur var sendur til viðskiptavina Islandus bíla í samstarfi við samtökin Friður 2000 vegna neyðarástands í Palestínu. Islandus hefur ákveðið að tvöfalda áhrif stuðnings sinna viðskiptavina við friðarflug með hjálpargögn til Palestínu með því að leggja til mótframlag uppá sömu upphæð og viðskiptavinir fyrirtækisins.