• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Guðlaugur Þór fundaði með Mike Pompeo

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. janúar 2019
in Erlent, Fréttir
A A
0

Ýmis tvíhliða málefni á borð við viðskipti, fríverslun, öryggis- og varnarmál og norðurslóðamál voru til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í dag. Ráðherrarnir samþykktu í lok fundar sameiginlega yfirlýsingu um samstarf ríkjanna. 
Fundurinn í Washington í dag er fyrsti tvíhliða fundur ráðherranna frá því Pompeo tók við embætti í fyrrasumar. Viðskipti og varnar- og öryggismál voru í brennidepli á fundinum en auk þess ræddu þeir Guðlaugur Þór og Pompeo málefni norðurslóða og formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.
„Samband Íslands og Bandaríkjanna hefur alla tíð verið náið, meðal annars á sviði varnar- og öryggismála. Samstarf ríkjanna á því sviði stendur á traustum grunni varnarsamningsins og Atlantshafsbandalagsins. Bandaríkin eru auk þess stærsti einstaki markaður Íslands, bæði þegar horft er til vöru- og þjónustuviðskipta og beinna fjárfestinga á Íslandi, svo ekki sé minnst á þann mikla fjölda bandarískra ferðamanna sem heimsækir Ísland ár hvert,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra að fundinum loknum. „Þá deilum við hagsmunum á norðurslóðum og horfum til aukins samstarfs í Norðurskautsráðinu þegar Ísland tekur þar við formennsku í maí. Góð samskipti við okkar góðu granna í vestri eru því afar mikilvæg. Vilji Bandaríkjastjórnar til að efla samvinnuna við okkur enn frekar kom glögglega í ljós á fundinum í dag.”
Í lok fundar samþykktu ráðherrarnir sameiginlega yfirlýsingu sem tekur til aukins samstarfs á sviði öryggis- og varnarmála, sérstaklega í ljósi breyttra aðstæðna á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum. Þá er undirstrikað í yfirlýsingunni að ríkin ætli að kanna leiðir til að bæta aðstæður fyrir viðskipti og fjárfestingar sem og samvinnu á vettvangi Norðurskautsráðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?