• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Er gjaldið kannski líf tveggja barna?''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Leiðsögumaðurinn þurfti að vaða út í sjóinn upp að mitti í öldugangnum og náði að grípa í barnið sem var komið lengra frá landi. Hann þurfti virkilega að hafa fyrir því að sogast ekki út með öldunni

,,Mig langaði að deila með ykkur alvarlegu atviki sem átti sér stað í Reynisfjöru nú í dag um kl.15:00. Þannig er mál með vexti að leiðsögumaður frá fyrirtækinu sem ég starfa hjá var þar staddur með 4 þýskar konur í Suðurstrandarferð. Að hans sögn var talsverður öldugangur og fylgdust hann og konurnar með öldurótinu úr öruggri fjarlægð, enda var hann búinn að brýna fyrir þeim hverskonar hættur leynast í Reynisfjöru.“ Segir ónafngreindur aðili sem starfar við ferðaþjónustu.
Þær þýsku áttu ekki til aukatekið orð yfir þeim háska sem reglulega dundi yfir þegar aðrir ferðamenn áttu fótum sínum fjör að launa undan öldunum og mátti oft litlu muna. Skyndilega tóku þau eftir því að beint fyrir neðan þau í fjörunni var erlent par með tvö ung börn með sér, annað barnið sennilega 4-5 ára en hitt 6-7 ára. Foreldarnir stóðu aðeins ofar í fjörunni á meðan börnin voru nokkuð neðar að leika sér, nær sjónum.

Leiðsögumaðurinn fékk strax ónot í magann við að sjá þetta og var að gera sig líklegan til að hafa afskipti af þeim þegar stór alda skall á börnunum þannig að þau féllu kylliflöt fram fyrir sig. Þá tók leiðsögumaðurinn á rás og á meðan voru foreldrarnir eins og steinrunnir og vissu ekki hvað þau áttu að gera. Á meðan byrjuðu börnin að sogast lengra út. Á þessum tímapunkti voru bæði börnin fljótandi á maganum með andlitin á kafi í sjónum.
Leiðsögumaðurinn þurfti að vaða út í sjóinn upp að mitti í öldugangnum og náði að grípa í barnið sem var komið lengra frá landi. Hann þurfti virkilega að hafa fyrir því að sogast ekki út með öldunni. Faðir barnanna fór út í sjóinn á eftir leiðsögumanninum og reyndi að ná taki á barninu sem var nær landi og var í basli við það. Leiðsögumaðurinn, sem þá hélt á hinu barninu eins og ferðatösku, þurfti að grípa í barnið sem faðirinn var að reyna að ná taki á og hlaupa með þau bæði í land.

Börnunum báðum var mjög brugðið eftir þetta en virtist sem betur fer ekki hafa orðið meint af. Foreldrarnir virtust ekki gera sér fyrir alvarleika málsins eða hversu nálægt því þau voru að missa annað ef ekki bæði börnin sín.

Ástæða þess að ég deili þessu með ykkur er ekki sú að upphefja leiðsögumanninn sem hetju eða neitt slíkt (þrátt fyrir að þetta hafi klárlega verið lífbjörgun), heldur til að benda hversu litlu mátti muna að mikill harmleikur hefði átt sér stað í Reynisfjöru nú í dag 8.febrúar.

Sem betur fer var þarna réttur maður á réttum stað, en það er ekki víst að svo verði alltaf.
Hvað þarf að gerast til að ástandið í Reynisfjöru verði tekið föstum tökum og eitthvað gert í málunum annað en að tala og tala.

Er gjaldið kannski líf tveggja barna?“
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?