Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, er sammála Katrínu Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssyni um að einkavæða Íslandsbanka. Síðast þegar Búnaðarbanki Íslands og Landsbanki Íslands voru einkavæddir. Var talað um EinkaVinavæðingu en þá einkavinavæddu framsóknarmenn Búnaðarbankann og Sjálfstæðismenn Landsbankann til sinna manna, með hörmulegum afleiðingum og eignaupptöku fyrir þjóðina. Sagan segir að bankarnir hafi verið rændir innan frá og það sama á við um Íslandsbanka. Sagan hefur verið rituð um þá einkavæðingu og engu er þar við að bæta. En nú á aftur á móti að hefja sama leik undir forystu Vinstri grænna, en ríkisstjórnin hefur umboð til þess næstu mánuði, komi ekki til kosninga fyrr eða að öryggisventill þjóðarinnar, forsetinn, virki eins og hann ætti að gera.
Skorað hefur verið á forseta Íslands að koma í veg fyrir áform ríkisstjórnarinnar um að einkavæða bankana aftur.
Katrín Jakobsdóttir segir að einkavæðinga sporin hræði sitt fólk
Fram kom flokksráðsfundur VG árið 2020 sem haldinn er í Félagsheimili Seltjarnarness í dag og á morgun að einhugur er hjá formanni Vinstri grænna og formanni Sjálfstæðisflokksins að nú eigi að einkavæða Íslandsbanka. Rætt er um að selja fjórðung í fyrsta áfanga og nota féið til innviðauppbygginga.
Bankarnir hafa frá hruni skilað hundruðum milljarða í arð til ríkisins sem eiganda. Fram hefur komið að engin þörf sé á að selja bankann til að fjármagna innviði enda aðeins reiknað með að lélegt verð fáist fyrir söluna í bankanum upp á einhverja tugi milljarða. Sem skipta í raun engu máli þar sem það eru t.d. 700 milljarðar í sjóði Seðlabankans ónotaðir. Má því færa fyrir því fullkomin rök að um sé að ræða fyrirslátt. Þvi engin þörf er á sölu og aðstæður allt aðara en voru þegar bankarnir voru færðir í hendur aðila með gjörsamlega tómar hendur á sínum tíma en voru þá nefndir kjölfestufjárfestar. En hægt er að lesa um þá sögu í mörgum ítarlegum rannsóknarskýrslum.
Katrín Jakobsdóttir sagði að söluferlið yrði að vera opið og gagnsætt og að sporin hræði þegar sala á ríkiseignum er annars vegar og var þá aðallega að vísa til síðustu einkavæðingu Búnaðarbankans og Landsbankans. En í millitíðinn hafa fleiri fjármálafyrirtæki verið einkavædd eins og t.d. Borgun og Arionbanki í tíð núverandi ríkisstjórnar. En samið hefði verið um að selja bankana í stjórnarsáttmála. Sem var gerður þegar samið var um ráðherrastóla ofl.
Þá var einnig rætt um ný lög þar sem gerðar verða nýjar og strangari kröfur um að fyrirtæki upplýsi um raunverulega eigendur og jafnframt var rætt um að verið væri að vinna að því að hamla að útlendingar geti keypt upp jarðir á Íslandi.
https://gamli.frettatiminn.is/skorad-a-forseta-islands-ad-heimila-ekki-einkavaedingu-a-islandsbanka-og-landsbanka/
,,Tímabært að selja Íslandsbanka“ – Telur ólíklegt að fullt verð fáist