Við undirrituð skorum á þig forseta lýðveldisins Íslands

Hr. Guðna Th. Jóhannesson að beita málskotsrétti þínum til þjóðarinnar skv. 26. grein stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og synja staðfestingar á hverjum þeim lögum samþykktum af Alþingi Íslendinga sem fela í sér sölu hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka eða Landsbankanum og vísa þannig lögum til þjóðaratkvæðagreiðslu. 82% þjóðarinnar tekur afstöðu á móti sölu bankanna, sanngjarnast væri að spyrja þjóðina.
Ef til kemur að ekki verði notast við lagasetningu við sölu bankanna skorum við á þig að beita þér gegn sölunni eða krefja ráðamenn um þjóðaratkvæði. Þitt hlutverk er að vernda þjóðina fyrir þeim ákvörðunum Alþingis sem vinna gegn velsæld hennar og sala bankanna er svo sannarlega ein þeirra. Áskorunin er birt á vefnum synjun.is og hægt er að skrifa undir hér að neðan.

Við skorum á alla íslenska ríkisborgara
að skrifa undir þessa áskorun hér fyrir neðan. Víglínan er skýr; þeir sem vilja að þjóðin fari með forræði sinna eigin banka annars vegar og hins vegar þeir sem óska sér að lítil elítu-klíka handvalin af stjórnvöldum ráði förinni í íslenskum bankaheimi í framtíðinni.
Í ljósi reynslunnar vill þjóðin ekki selja bankana fyrr en lög við hringamyndun, fákeppi, einokun eru orðin að veruleika og lög sett um hámark hlutabréfaeignar einstaklinga, félaga og tengdra aðila í bönkunum og aðra öryggisventla svo sagan endurtaki sig ekki.
Hér er hægt skrifa undir áskorunina
https://www.facebook.com/synjun.is/
https://gamli.frettatiminn.is/einhugur-hja-vinstri-graenum-og-sjalfstaedisflokki-ad-einkavaeda-islandsbanka/
Umræða