• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Veitingastyrkir samþykktir á Alþingi – Getur numið 90% af rekstrarkostnaði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. febrúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna Covid 19 var samþykkt á Alþingi í dag. Nýsamþykkt lög gera ráð fyrir að einstakir rekstraraðilar geti fengið allt að 12,5-15 milljónir í styrki til að standa undir rekstrarkostnaði á fimm mánaða tímabili. Hægt verður að sækja um styrkina hjá Skattinum.

Styrkirnir fela í sér áframhaldandi stuðning við mikilvæga atvinnugrein sem hefur orðið fyrir tjóni vegna sóttvarnartakmarkana að undanförnu. Úrræðið í nýsamþykktum lögum byggist á grunni viðspyrnustyrkja sem veittir voru á síðasta ári en er þó sérsniðið að veitingarekstri, sem hefur sætt takmörkunum umfram flestar atvinnugreinar.

Rekstraraðilar veitingastaða sem hafa orðið fyrir minnst 20% tekjufalli í almanaksmánuði frá nóvember 2021 til mars 2022, vegna takmarkana á opnunartíma, geta fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði á tímabilinu. Úrræðið er ekki bundið við fyrirtæki með langa rekstrarsögu, heldur er gert ráð fyrir að veitingastaðir sem opnuðu í fyrra geti notið úrræðisins – að því gefnu að önnur skilyrði laganna séu uppfyllt.

Styrkurinn getur numið allt að 90% af rekstrarkostnaði þess almanaksmánaðar sem umsókn varðar, en hann verður þó ekki hærri en sem nemur tekjufalli rekstraraðila viðkomandi mánuð. Styrkurinn getur jafnframt ekki orðið hærri en 500 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu og allt að 2,5 m.kr. á mánuði ef tekjufall var 20-60% en allt að 600 þús.kr. fyrir hvert stöðugildi og allt að 3 m.kr. á mánuði ef tekjufall var meira en 60%. Samanlagðir styrkir til einstakra rekstraraðila vegna tímabilsins alls geta því að hámarki orðið 12,5 til 15 m.kr.

Umsækjendur um styrkina þurfa að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksumsvif, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og um að vera ekki í gjaldþrotameðferð. Umsóknar- og ákvörðunarferli vegna styrkjanna verður rafrænt og framkvæmdin er falin Skattinum.

Nýsamþykkt lög byggjast m.a. á góðu samtali fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fulltrúa fyrirtækja í veitingarekstri, en alls hafa fyrirtæki í greininni fengið um 11 milljarða króna í beina styrki frá hinu opinbera vegna faraldursins . Með áframhaldandi stuðningi er markmiðið, eins og áður, að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?