Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starfsfólks Öldrunarheimila Akureyrar vegna sýkingar af völdum Kórónaveirunnar COVID-19 á Íslandi
Öldrunarheimili Akureyrar sendi frá sér neðangreinda tilkynningu:
Öldrunarheimili Akureyrar hefa tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilum sínum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7.mars þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir. Öldrunarheimili Akureyrar eru hér að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands.
Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi!
Athugið að starfsemi dagþjálfana verður með óbreyttu sniði, en staðan verður endurmetin frá degi til dags.
Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Öldrunarheimila Akureyrar eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.
Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilanna veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.
Jafnframt verður umferð allara annara gesta, tökmörkuð inn á Öldrunarheimilin og gerðar hafa verið sérstakar reglur um það. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin.
Vinsamlegast hafið samband við forstöðumann / aðstoðarforstöðumann / vakthafandi hjúkrunarfræðing ykkar heimilis ef ykkur vantar nánari upplýsingar.
Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu mála, en þær geta breyst frá degi til dags.
Bestu kveðjur og með von um gott samstarf
Stjórnendur á Öldrunarheimilum Akureyrar