,,Ég vissi ekki hvert ég átti að leita eftir hjálp“
Meghan hertogaynja af Sussex íhuaði sjálfsvíg vegna erfiðleika í sambúð við bresku konungsfjölskylduna. Þetta og fleia kom fram í viðtali sem Meghan og Harry Bretaprins veittu Oprah Winfrey og var sýnt var á sjónvarpsstöðinni CBS í gær og viðtalið verður sýnt í Bretlandi í kvöld.
Þau ræddu um kynþáttahatur sem þau fundu fyrir innan konungsfjölskyldunnar og Harry segist hafa verið spurður að því af einum í fjölskyldunni, hve dökkur á hörund sonur þeirra Meghan, Archie, yrði? Spurningin var borin fram á miðri meðgöngu og Meghan segir þessa stund hafa veri þeim mjög þungbær.
Meghan sagðist ekki hafa fengið andlega hjálp sem hún þurfti á að halda eftir að hún varð hluti af konungsfjölskyldunni. Winfrey spurði hvort hún hafi hugsað um að svipta sig lífi og því svaraði Meghan: „Já. Það er alveg ljóst. Alveg ljóst og mjög hræðilegt og ég vissi ekki hvert ég átti að leita eftir hjálp,“ sagði hún.
Harry sagði frá því að faðir hans, Karl Bretaprins hefði hætt að svara símtölum hans um það leiti er hjónin voru að íhuga að segja sig frá öllum konunglegum skyldum. En samband hans við ömmu sína, Elísabetu Bretadrottningu væri mjög gott. Hjónin búa nú í Montecito í Kaliforníu og eiga von á stúlkubarni í sumar.