2.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

117 ökumenn myndaðir og sektaðir

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, að Stöng. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 606 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í norðurátt, að Boðagranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 310 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.