• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

COVID-19: Aðgerðir á landamærum – breytt skilyrði um dvöl í sóttkví

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila. Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð nr. 355/2021 sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

Sóttvarnalæknir segir í minnisblaði til heilbrigðisráðherra að ófullnægjandi fylgni við reglur um heimasóttkví þeirra sem koma til landsins sé ein helsta ógn við núverandi smitvarnir á landamærum. Veruleg hætta sé á að smit berist inn í landið nema gripið verði til frekari aðgerða á landamærunum. Hann bendir á að umfang bólusetningar sé ekki orðið nægilegt hér á landi til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur, víðast erlendis sé faraldurinn í mikilli útbreiðslu sem auki hættuna á að smit berist til landsins. Þá séu ný og meira smitandi afbrigði veirunnar orðin allsráðandi í nálægum löndum sem virðist valda alvarlegri veikindum í yngri aldurshópum, auk þess sem óvissa ríki um hvort þau geti valdið endursýkingum og hve mikla vernd þau bóluefni sem nú eru í notkun veiti gegn þeim.

Helstu reglur um sóttkví og sýnatöku á landamærum frá og með 9. apríl

Sömu reglur gilda um alla farþega, óháð því hvaðan þeir koma: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum taka jafnt til allra, óháð því hvort þeir koma frá löndum sem skilgreind eru sem áhættusvæði eða ekki.

Sýnataka og sóttkví: Öllum sem koma til landsins verður sem fyrr skylt að fara í sýnatöku á landamærunum, fimm daga sóttkví og aðra sýnatöku við lok hennar (sjá þó nánar um börn hér að neðan og sýnatöku hjá einstaklingum með vottorð). Fólki er heimilt að vera í heimasóttkví að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem hafa ekki tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því og er dvölin þar viðkomandi að kostnaðarlausu.

Kröfur til heimasóttkvíar: Þeir sem eru í sóttkví þurfa að vera í húsnæði sem uppfyllir skilyrði og umgengnisreglur samkvæmt nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Í því felst að einstaklingur skuli vera einn á dvalarstað en ef fleiri dveljast þar þurfa þeir að sæta öllum sömu skilyrðum sóttkvíar. Þeir sem ekki geta dvalið í heimasóttkví sem uppfyllir skilyrði sóttvarnalæknis þurfa að dvelja í sóttvarnahúsi.

Brot á heimasóttkví: Gerist einstaklingur uppvís að því að brjóta heimasóttkví getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi.

Sóttvarnahús: Þeir sem ekki hafa tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því. Dvölin er viðkomandi að kostnaðarlausu. Þeim sem dvelja í sóttvarnahúsi verður gert kleift að njóta útiveru og sérstakt tillit verður tekið til barna, s.s. varðandi útiveru og annan aðbúnað.

Sýnataka og sóttkví barna: Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýnatöku á landamærunum. Ferðist barn með einstaklingi sem skylt er að sæta sóttkví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sóttkví ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ef samferðamaðurinn er undanþeginn sóttkví er barnið það sömuleiðis. Barn sem ferðast eitt þarf ekki að fara í sóttkví.

Sýnataka hjá einstaklingum með vottorð: Krafa um sýnatöku hjá einstaklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbendinga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Krafan er tímabundin og verður endurskoðuð fyrir 1. maí.

Aukið eftirlit og hærri sektir: Sóttvarnalæknir leggur til að eftirlit með einstaklingum í heimasóttkví verði aukið í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og jafnframt að sektir fyrir brot á sóttkví verði hækkuð til muna. Heilbrigðisráðherra hefur komið tillögum sóttvarnalæknis varðandi þetta á framfæri við ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.

  • Reglugerðin (óbirt)
  • Minnisblað sóttvarnalæknis
Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tónlistarmiðstöð formlega stofnuð og ný stjórn kynnt

    Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Húsleit í miðborginni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?