Hér eru helstu fréttir eftir daginn frá LRH
Maður í annarlegu ástandi vistaður í fangaklefa þar sem hann var ekki í ástandi til að vera úti á meðal fólks. Manninnum sleppt seinnipartinn þegar ástand hans lagaðist en engar kröfur voru á hann.
Par handtekið í hverfi 105 vegna húsbrots, þau vistuð í fangaklefa.
Innbrot og þjófnaður í fyrirtæki í hverfi 210, bifreið og einhverjum lausamunum stolið, málið í rannsókn
Aðili handtekinn í hverfi 200 vegna innbrots og þjófnaðar, maðurinn grunaður um fleiri innbrot og var hann vistaður í fangaklefa og bíður skýrslutöku.
Ekið á ljósastaur í hverfi 270, slysalaust en bifreiðin óökufær eftir.
Tveir aðilar handteknir og vistaðir í fangaklefa eftir að hafa velt bíl sínum í hverfi 116, mennirnir báðir ölvaðir og voru ekki alveg vissir á hvor var að aka bifreiðinni.
Helstu tíðindi frá lögreglu 07. apríl 17:00 til 08. apríl 05:00.
22:15 Óskað aðstoðar vegna líkamsárásar og eignaspjalla í hverfi 107.
22:00-01:00 Eftirlit viðhaft með samkomustöðum í miðborg Reykjavíkur. Í ljós kom að réttindalausir dyraverðir voru við störf á sex stöðum í miðborginni, en þeim var gert að hætta störfum og vaktstjórum gert að útvega dyraverði með réttindi í staðinn. Málin eru rannsökuð sem brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og eiga staðirnir og ábyrgðamenn þeirra yfir höfði sér sekt vegna þessa.
02:53 Tveir aðilar kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt – fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri í hverfi 101.
03:39 Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis í hverfi 108. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
18:45 Ökumaður sektaður fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum í hverfi 220.
19:37 Ökumaður sektaður fyrir að aka með of marga farþega og börn ekki í viðeigandi öryggisbúnaði. Málið verður tilkynnt barnaverndarnefnd.
22:30 Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í hverfi 200. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
23:45 Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í hverfi 111, en sá reyndist einnig sviptur ökuréttindum. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
23:35 Ökumaður sektaður fyrir of hraðan akstur í hverfi 110, en sá ók á 111 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 80 km/klst.
02:35 Ökumaður sektaður fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum í hverfi 110.