• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 24. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu

ritstjorn by ritstjorn
8. júní 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu stöðvað kannabisræktun á nokkrum stöðum í umdæminu og jafnframt lagt hald á nokkur kíló af tilbúnum kannabisefnum, auk kókaíns, amfetamíns og MDMA. Í öllum tilvikum var um að ræða íbúðir í fjölbýlishúsum, en einn húsráðenda á þessum stöðum var sömuleiðis með fíkniefni í geymslu í kjallara hússins.

Í einni íbúðanna var að finna um 50 kannabisplöntur, 2 kg af kannabisefnum og 60 gr. af amfetamíni. Í annarri var lagt hald á talsvert magn af kókaíni, amfetamíni og MDMA, auk nokkurra tuga kannabisplanta, en barn var búsett á heimilinu og voru fulltrúar barnaverndaryfirvalda kallaðir til vegna þessa. Í þriðju íbúðinni var líka að finna nokkra tugi kannabisplantna sem og allnokkuð af tilbúnu kannabisefni.
Svipað átti við um fjórða vettvanginn sem lögreglan mætti á, en þar innandyra var að finna rúmlega eitt kíló af kannabisefnum. Efnin voru afrakstur kannabisræktunar, sem hafði verið klippt niður nokkrum dögum fyrir heimsókn laganna varða. Húsleitirnar voru framkvæmdar í Reykjavík og Kópavogi og var einn handtekinn á hverjum stað.
Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst, en þrír mannanna sem komu við sögu í þeim eru á fertugsaldri. Fjórði maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Engjateig í Reykjavík eftir hádegi mánudaginn 4. júní, en tilkynnt var um málið kl. 14.19.

Atvikið átti sér stað á eða við göngustíg sem liggur á milli Engjateigs 9 og 11, að Sigtúni. Þar veittist maður að karlmanni um fertugt sem var á göngu með hundinn sinn.
Árásin var fólskuleg, en árásarmaðurinn notaði m.a. reiðhjól sem barefli. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hermann.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Discussion about this post

  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ef þetta er rétt vantar um 20 milljarða í íslenskt hagkerfi á hverju ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hamingjan er lífstíll sem fólk velur sér

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?