Lögregla á Suðurlandi hefur haft í nógu að snúast frá því í gærmorgun enda veður gott með eindæmum, hægur vindur, sól og blíða. Fjölmargir hafa lagt leið sína á tjaldsvæði, ferðamannastaði og í sumarhúsabyggðir í umdæminu.
Fimm einstaklingar gistu fangageymslur á Selfossi eftir nóttina.
29 ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur og sá sem hraðast fór ók á 140 km/klst hraða á Mýrdalssandi.
Fimm ökumenn voru kærðir fyrir að aka án öryggisbeltis. 14 fyrir að nota farsíma samhliða akstri.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fyrir akstur undir áhrifum áfengis.
Þá hafa tveir einstaklingar verið kærðir fyrir akstur utan vega, ekki hlutust mikil spjöll af athæfi þeirra og verður málunum lokið með greiðslu sektar.
Um hádegi í dag barst lögreglu tilkynning um litla þyrlu (fis) sem hafði hlekkst á í lendingu skammt frá Þingvöllum. Voru tveir aðilar í fisinu en sakaði ekki. Rannsóknarnefnd flugslysa var kvödd á vettvang og annast rannsókn ásamt lögreglu.
Björgunarsveitir sóttu fótbrotinn einstakling í Reykjadal upp af Hveragerði og komu honum til móts við sjúkraflutningamenn sem fluttu hann til aðhlynningar.
Fjöldi fólks er samankominn á Selfossi þar sem fram fer útihátíðin Kótilettan. Tjaldsvæði á Selfossi og í nálægum sveitarfélögum eru þéttsetin og sækja margir þá viðburði sem eru í boði á hátíðinni. Nokkuð hefur verið um útköll vegna ástands í kjölfar áfengis- eða vímuefnaneyslu. Ein líkamsárás kom inn á borð lögreglu. Engin alvarleg eða stórfelld mál hafa komið til kasta lögreglu í tengslum við skemmtanahald og er samdóma álit manna að hátíðin hafi farið vel fram til þessa.
Umferð um Suðurlandsveg í Ölfusi og inn á Selfoss gengur mjög hægt og eru vegfarendur beðnir um að sýna tillitssemi við þessar aðstæður. Að sama skapi er ökumönnum bent á að nýta sér veginn um Þrengsli og Eyrarbakkaveg til að dreifa umferðarálaginu. Vegfarendum sem ætla í uppsveitir Árnessýslu er bent á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.
Lögregla mun halda úti öflugu eftirliti með umferð og mega ökumenn búast við handahófskenndum eftirlitsstöðum þar sem kannað verður ástand ökumanna. Jafnframt verður fylgst sérstaklega með ökuhraða og framúrakstri. Eru bæði nýttar merktar sem og ómerktar lögreglubifreiðar við þetta eftirlit.
Lögregla hvetur ökumenn til að gefa sér góðan tíma í ferðalög milli staða og taka mið af umferðarþunga sem er á vegum embættisins. Ökumenn eru sérstaklega beðnir um að huga að bílbeltanotkun sinni og farþega sem og að gefa farsímum frí meðan á akstri stendur.
Njótum blíðunnar og komum heil heim.