TF-SYN fengin til aðstoðar vegna grjótskriðu sem féll úr Fagraskógarfjalli
Flogið var yfir svæðið og umfang skriðunnar metið – Grjótskriðan féll þvert yfir Hítará og er um 2 km. löng og stíflar ánna. Lón hefur myndast fyrir ofan
Á þriðja tímanum í gærdag hélt TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, áleiðis til Siglufjarðar þar sem ráðgert var að áhöfn hennar tæki þátt í hátíðarhöldum á Siglufirði.
Þegar þyrlan hafði nýlega tekið á loft frá Reykjavík var óskað eftir aðstoð hennar vegna grjótskriðu sem féll í úr Fagraskógarfjalli í gærnótt. Áhöfn þyrlunnar aðstoðaði lögreglu og jarðvísindamenn á svæðinu en flogið var yfir svæðið og umfang skriðunnar metið.
Skriðan sem féll úr Fagraskógarfjalli við Hítardal í gærmorgun er að öllum líkindum ein sú stærsta sem hefur fallið frá landnámi.
Séð upp í Fagraskógarfjall þar sem skriðan féll.
Skriðan til austurs
https://gamli.frettatiminn.is/2018/07/07/alvarleg-stada-i-hitara/
Umræða