Klukkan 17:57 varð skjálfti af stærð 4,5 rétt vestan við Kleifarvatn. Tilkynningar hafa borist víðsvegar frá suðvesturhorninu um að hann hafi fundist.
Skjálftinn er talinn vera svokallaður gikkskjálfti, sem verður vegna spennubreytinga á svæðinu. Gos er líklegt næsta sólarhringinn
Við minnum á að grjóthrun getur orðið í kjölfar öflugra skjálfta, því skal fara með varúð við brattar hlíðar. Íbúar í grennd við svæðið eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum.
Umræða