Í dag barst hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum aðstoðarbeiðni frá hópi 20-30 manna hóps hestafólks, sem var að koma frá Landmannahelli og ætluðu inn í Landmannalaugar. Kona hafði fallið af baki við Frostastaðavatn og var óttast um að hún hefði hlotið hryggáverka.
Björgunarfólk hélt þegar á staðinn og bjó konuna til flutnings. Ákveðið var að fá þyrlu frá Landhelgisgæslunni til að flytja konuna á sjúkrahús. Ekki voru góðar aðstæður til að lenda þyrlu á slysstað svo konan var flutt skamma leið með bíl björgunarsveitar og færð í þyrluna.
Í dag varð einnig annað samskonar óhapp þar sem önnur kona féll af hestbaki á svipuðum slóðum og var flutt í bíl björgunarsveitar til móts við sjúkrabíl, en hún fékk höfuðáverka við fallið.
Þegar þessi orð eru rituð um hálf sjö í kvöld, er hálendisvaktin á leið að Illagili að fjallabaki, þar sem rúta með 20 farþega situr föst í á. Meðfylgjandi eru myndir frá fyrstu aðgerðinni í dag
Umræða