• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 16. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áslaug Arna á Íslendingadeginum í Gimli

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, við hátíðarhöld tengd Íslendingadeginum í Gimli. Bílinn keyrir Stefan Stefanson, Vestur-Íslendingur búsettur í bænum.

Áslaug Arna á Íslendingadeginum í Gimli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. ágúst 2023
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Hinn árlegi Íslendingadagur sem haldinn er í Gimli í Kanada fór fram um helgina. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var viðstödd hátíðarhöldin og ávarpaði gesti sem heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar í ár. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1890 og er næst elsta þjóðernishátíð (e. ethnic festival) sem haldin er í Norður Ameríku. Þá er Íslendingadagurinn stærsta hátíð fólks af íslenskum uppruna í Kanada.

Íslenskur menningararfur varðveittur í Kanada

Yfirskrift hátíðarinnar í ár var Continue your Saga eða Haltu sögu þinni áfram á hinu ástkæra ylhýra. Í ræðu sinni fjallaði Áslaug Arna um ríka frásagnarmenningu íslensku þjóðarinnar í aldanna rás og sagði í því skyni frá því þegar ungur Halldór Laxness, þá 14 ára, skrifaði bréf til barnatímaritsins Sunshine árið 1916. Tímaritið var ætlað börnum af íslenskum uppruna í Vesturheimi og lýsti þessi Nóbelsverðlaunahafi framtíðarinnar lífinu á Íslandi, náttúru landsins og djúpstæðum áhrifum Íslendingasagna á íslensku þjóðina.

,,Vinátta Íslands og Kanada er okkur ómetanleg. Við Íslendingar erum stolt af samfélagi Vestur-Íslendinga hér í Norður Ameríku og sömuleiðis þakklát fyrir varðveislu íslenskrar menningararfleiðar sem styrkir samband ríkjanna enn frekar,” sagði Áslaug Arna í ræðu sinni. ,,Ég er einnig þakklát þeirri gestrisni sem mér hefur verið sýnd hér í Gimli og þá væntumþykju í garð Íslands sem hér ríkir. Ég mun ávallt hugsa hlýtt til þessarar heimsóknar líkt og þið hugsið hlýtt til gamla landsins ykkar, Íslands.“

Fjölbreyttar heimsóknir á Íslendingaslóðir

Undirritun á ungmennaskiptasamningi milli Kanada og Íslands fór jafnframt fram í tilefni af heimsókn ráðherra til Kanada. Í samstarfssamningnum felst að íslensk ungmenni geti ferðast og starfað í Kanada í allt að 12 mánuði, með möguleika á framlengingu, og öfugt.

Ráðherra flutti einnig ávarp á Íslendingahátíð í Mountain í Norður Dakóta fylki í Bandaríkjunum og heimsótti fjölda staða á Íslendingaslóðum, bæði í Manitóba og Norður Dakóta. Til að mynda voru Thingvalla Church og Víkur Church skoðaðar ásamt minnisvarða um Pál Thorlakson annars vegar og Sigtrygg Jónasson hins vegar, en sá síðarnefndi er gjarnan kallaður faðir Nýja-Íslands. Þá heimsótti Áslaug Arna New Iceland Heritage safnið í Gimli og Víkingagarðinn. Loks heimsótti ráðherra háskólann í Manitóba þar sem hún átti fund með aðstoðarrektor og skoðaði safn íslenskra bóka og bréfa sem er að finna við háskólann.

  • Áslaug Arna og Almar Grímsson á Íslendingahátíðinni í Mountain í Norður Dakóta. - mynd
  • Áslaug Arna á Íslendingadeginum í Gimli - mynd úr myndasafni númer 2
  • Áslaug Arna á Íslendingadeginum í Gimli - mynd úr myndasafni númer 3
Umræða
Share23Tweet15
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    120 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?