Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var fjórum sinnum kölluð út um helgina. Áhafnirnar á TF-GNA og TF-GNA og TF-GRO önnuðust útköll yfir verslunarmannahelgina frá Akureyri og Vestmannaeyjum.
Á laugardag var þyrlusveitin kölluð út vegna slyss sem varð við heyskap í nágrenni Stykkishólms og aðfaranótt sunnudags var einn fluttur með þyrlunni frá Vestmannaeyjum vegna veikinda. Í gær var þyrlusveitin kölluð út tvívegis, annars vegar vegna manns í sjálfheldu í Fjósadal í nágrenni Patreksfjarðar og vegna veikinda í Hrafntinnuskeri.
Vel gekk að gera þyrlurnar út frá Eyjum og Norðurlandi. Áhöfnin sem staðsett var fyrir norðan annaðist einnig umferðareftirlit úr lofti í samvinnu við lögregluna á Norðurlandi eystra.
Við Hrafntinnusker í gær.
TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, á Reykjavíkurflugvelli.
Æft við Þrídranga.
Magnús Pálmar Jónsson, sigmaður.
Frá Vestmannaeyjum.
Umræða