SÆSTRENGUR: JP Morgan með 25 fjárfesta – Félag í eigu Truell á 12,7% í HS orku
Edi Truell, breskur fjárfestir, krefst þess að yfirvöld í Bretlandi skilgreini fyrirtækið Atlantic Superconnection sem erlendan raforkuframleiðanda og samþykki lagningu sæstrengs til Íslands. Þetta kemur fram í frétt á Vísir.is í dag. Skilgreiningin myndi gera fyrirtækinu kleift að selja raforku á niðurgreiddu verði og mun það vera stór þáttur í því að Truell geti fengið fjárfesta að verkefninu, sem kallast IceLink.
Truell heldur áfram að þrýsta á Greg Clark, viðskiptaráðherra Bretlands, samkvæmt frétt Sunday Times, og sagt að fjármagn sé klárt og það eina sem hann þurfi sé samþykki ríkisstjórnarinnar. Hann segir bankann JP Morgan vera með 25 fjárfesta sem muni koma að verkefninu og í gegnum þá gæti hann tryggt 2,5 milljarða punda til sæstrengsins, jafnvirði um 400 milljarða króna.
Fjárfestirinn hefur áður skorað á viðskiptaráðherra Breta, Greg Clark, og sagst geta fjármagnað verkefnið en þurfi aðeins samþykki stjórnvalda eins og hefur áður komið fram í Fréttatímanum.
Breski fjárfestirinn Edi Truell, hjá fyrirtækinu Atlantic Superconnection, hefur lengi viljað að bresk stjórnvöld gefi leyfi fyrir umfangsmiklar framkvæmdir sem geri Bretum kleift að sækja raforku til Íslands í gegnum sæstreng.
Fjallað var um málið á vef The Times fyrir nokkru. Þar segir að Truell hafi þrýst á Greg Clark, viðskiptaráðherra Bretlands, en Truell segir að öll fjármögnun liggi fyrir og nú þurfi hann aðeins samþykki stjórnvalda. Greint hefur verið frá því, að Atlantic Superconnection Corporation sé heiti á félagi breskra fjárfesta sem miði að því að fjármagna og setja upp yfir 1.000 kílómetra langan sæstreng til Íslands.
Fjárfestirinn hefur skorað á viðskiptaráðherra Breta, Greg Clark, og sagst geta fjármagnað verkefnið en þurfi aðeins samþykki stjórnvalda. Truell kvað fyrirtæki sitt, Atlantic Superconnection, geta skapað hundruð nýrra starfa í norðaustur hluta landsins, fái hann til þess leyfi. „Allt sem Greg Clark þarf að gera að skapa yfir 800 ný störf í Teesside er að sýna fram á að Atlantic Superconnection geti verið drifkraftur þar,“ sagði Truell, og bætti við, „Það myndi ekki skuldbinda ríkisstjórnina upp á eyri.“
Atlantic Superconnection hefur síðustu ár unnið að fjölmörgum greiningum á lagningu sæstrengs til Íslands, og keypti fjárfestingafélagið DC Renewable Energy, sem er systurfélag þess og í eigu Truell, 12,7% hlut í HS orku í fyrra.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/08/27/saestrengsverkefni-milli-islands-og-bretlands-er-tilbuid-og-fullfjarmagnad-allt-klappad-og-klart/