• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Átt þú rétt á sanngirnisbótum?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Sýslumaðurinn á Norðurlandi Eystra hefur birt auglýsingu í blöðum, þar sem kallað er eftir kröfum frá þeim sem dvöldu á stofnun fyrir fötluð börn fyrir 1. febrúar 1993. Einstaklingar sem telja sig eiga rétt til bóta á grundvelli laganna hafa frest til og með 31. janúar 2022 til að sækja um sanngirnisbætur.

Forsaga þessa máls er að árið 2007, í kjölfar mikillar umfjöllunar í fjölmiðlum, ákvað þáverandi ríkisstjórn að láta fara fram rannsókn á rekstri vistheimila. Vistheimilanefnd vann vandaðar skýrslur um fjölda vistheimila og í kjölfarið voru greiddar sanngirnisbætur til um 1.100 einstaklinga. Árið 2020 var lögum breytt til þess að hægt væri að ljúka bótauppgjöri vegna fatlaðs fólks sem var vistað á barnsaldri á öðrum stofnunum sem hið opinbera bar ábyrgð á.

Nú er verið að kalla eftir þeim sem telja sig eiga rétt á sanngirnisbótum á þeim grundvelli. Þeir sem urðu fyrir varanlegum skaða á stofnunum fyrir fötluð börn á vegum hins opinbera fyrir 1. febrúar 1993 og sættu illri meðferð eða ofbeldi, geta átt rétt á sanngirnisbótum.
Sanngirnisbætur eru greiddar til þeirra sem urðu fyrir varanlegum líkamlegum, sálrænum eða félagslegum skaða vegna illrar meðferðar meðan á vistun þeirra stóð. Ill meðferð getur verið ofbeldi og vanræksla og falist í athöfnum eða athafnaleysi starfsmanna og eftir atvikum annarra opinberra aðila.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra fer yfir umsóknir og metur hverjum skuli greiða sanngirnisbætur. Við matið er m.a. skoðað á hvaða stofnun umsækjandi var vistaður og hversu lengi. Telji sýslumaður umsækjanda eiga rétt á bótum, gengur hann frá sáttatilboði og sendir það til umsækjanda. Frestur umsækjanda til að svara sáttaboði er 30 dagar frá móttöku þess.

Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir, þroskaþjálfi hefur verið ráðin tengliður sanngirnisbótaverkefnisins og verður hún með viðtalsaðstöðu hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi. Tengiliður sanngirnisbóta hefur það hlutverk að koma upplýsingum á framfæri við þá sem kunna að eiga bótarétt og aðstoða þá við framsetningu umsókna um sanngirnisbætur. Þá ber tengiliði einnig að leiðbeina fyrrverandi vistmönnum sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar um úrræði sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endurhæfingu og menntun. Félagsmálastjórar um land allt, sem og aðrir sem gæta hagsmuna þeirra sem kunna að eiga rétt til sanngirnisbóta, eru hvattir til að setja sig í samband við tengiliðinn ef spurningar vakna um sanngirnisbótaverkefnið.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi sanngirnisbætur, er unnt að leita aðstoðar Ingibjargar, án endurgjalds. Netfang er tengilidur@tengilidur.is

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?