Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rétt tæpar 300 þúsund krónur, tveir miðanna voru keyptir á lotto.is, einn er í áskrift, einn var keyptur í Appinu og einn í Hagkaup á Seltjarnarnesi.
Tveir ljónheppnir miðaeigendur skiptu með sér 4földum Lottópotti vikunnar og fær hvor þeirra rúmlega 26,4 milljónir í vinning, annar miðinn var keyptur í Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík en hinn er í áskrift.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær 2 milljónir í vinning, miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni í Reykjavík. Þá voru sex miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund kall í vinning hver, tveir miðanna eru í áskrift, tveir voru keyptir í Appinu, einn á lotto.is og einn hjá Jóni & Co í Lóuhólum, Reykjavík.
Umræða