Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning á sjöunda tímanum í morgun um að línubátur væri strandaður við Rifstanga á Melrakkasléttu. Tveir voru um borð. TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út sem og björgunarskipið Gunnbjörg frá Raufarhöfn auk sjóbjörgunarsveita á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Þá voru bátar sem voru í grenndinni einnig beðinn um að halda á vettvang. Rúmri klukkustund eftir strandið tókst björgunarskipinu Gunnbjörgu að draga línubátinn af strandstað. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð sem og aðrar bjargir. Línubáturinn er nú á leið til Raufarhafnar.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/08/stendur-til-ad-haekka-verd-a-heitu-vatni-til-heimila-um-97-thann-1-januar/