Fyrirspurnir frá Miðflokknum til Orkuveitunnar um hækkanir
Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins vekur athygli á fyrirhugaðri 97% hækkun á heitu vatni þann 1.janúar n.k. og beinir spurningum til Orkuveitunnar varðandi þessa gífurlegu hækkun :
1. Á hvaða grunni er sú ákvörðun byggð að hækka verð á heitu vatni um 97% þann 1. janúar n.k. til Gróðrastöðvarinnar Lambhaga eða úr 61 kr. upp í 120 kr. fyrir rúmmetrann?
2. Telur Reykjavíkurborg í ljósi umhverfisumræðu það réttlætanlegt að garðyrkjustöðin seti upp kyndistöð sem kemur til með að brenna timburkurl, kolum og plasti eins og gert er í Noregi og Danmörku?
3. Hefur Orkuveitan látið gera úttekt á því hvort þessi hækkun standist lög sbr. hækkun á kaldavatnsgjaldi sem var úrskurðað ólöglegt gjaldárið 2013?
4. Stendur einnig til að hækka verð á heitu vatni um 97% þann 1. janúar n.k. til annarra fyrirtækja og heimila á gjaldsvæði Orkuveitunnar?“
Spyr Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins og við munum fylgjast með framvindu málsins á næstu dögum og mánuðum.