„Myglusveppurinn“, sem nú herjar mjög á leikskóla- og grunnskólahús, hefur gengið til liðs við eyðingaröflin sem hinn stóri skaðvaldur. Þessi örvera, sem enginn virtist hafa áhyggjur af fyrir nokkrum árum, kostar gríðarháar fjárhæðir í viðgerðum á skólum auk þess sem myglan veldur heilsufarsvanda og öðru óæskilegu inngripi í skólastarf.“
Þetta kemur fram í grein, með fyrirsögn: „Kristni eða myglusveppur“ eftir Ársæl Þórðarson, húsasmið, í Morgunblaðinu í dag þar sem hann fjallar um kristni og tengsl myglusvepps og skorts á kristnifræðikennslu og meinta „klámkennslu“ í skólum.
Þar fer Ársæll yfir stöðu mála og segir: ,,Á meðan kristinfræði var kennd í skólum virtist myglusveppurinn ekki hafa náð útbreiðslu. Börnin lærðu biblíusögurnar og að aðeins væri um karlkyn og kvenkyn að ræða. Það væru kynin sem allt frá sköpun lífríkis á jörðu sæju um að viðhalda lífríkinu með hjálp þeirra hvata sem Guð sköpunarinnar gaf lífverunum til viðhalds tegundunum.
Í árþúsundir hafa menn látið sér nægja að trúa sínum eigin augum í því sambandi hvernig kynslóðirnar endurnýja sig og sætt sig við stjórn almættisins í þeim málum.
Hinn góði andi sannleikans ríkti um þessi mál og friður var í starfsumhverfi skólanna og kennarar sinntu sínum störfum í öruggu starfsumhverfi heilbrigðra starfshátta þar sem kynin voru kk, kvk og reyndar líka hk.
Nú hafa þau undur og stórmerki gerst að innan íslenska samfélagsins þrífst hugmyndafræðileg bylting, eins konar andleg „Kristjanía“ þar sem fríríkishugsjónin snýst m.a. um að útvatna karlkyn (kk) og kvenkyn (kvk) og stofna eins konar kynjaflóru fjölbreytileikans þar sem börn geta, eftir því sem fréttir herma, látið greina kynhneigð sína og ákveðið svo sjálf hvar í kynjaflórunni þau kjósa að staðsetja sig.
Guði sköpunarinnar er ekki lengur treystandi fyrir málunum og gamla áherslan um getnað til viðhalds lífríkinu virðist varla vera inni í myndinni lengur.
Svo ótrúlega sem það hljómar virðast sumar sveitarstjórnir auk margra skólastjórnenda hafa tekið nýbreytninni fagnandi og telja að kynfræðslu barna sé betur borgið í höndum fræðara sem kunna á töfratól nýbreytninnar en foreldra sem nota sömu aðferð og erfst hefur frá Adam og Evu til viðhalds mannkyninu.
Matur er ekki skemmtun, matur er næring til að viðhalda lífi. Kynhvötin var ekki gefin til skemmtunar heldur til að viðhalda lífi á jörðinni.
Börnum á að kenna að vernda skírlífi sitt þar til þau finna ástina í maka sínum og lífsförunaut, það er hin rétta kynfræðsla og það er enginn vandi að fræða börn um kynlíf út frá því biblíulega viðhorfi. Þá yrði minna um ótímabærar þunganir og þungunarrof.
Ég hef alltaf talið að Guð Biblíunnar væri alvörugefinn en sumir halda því fram að hann hafi húmor til að bera. Það er ef til vill grátt gaman að ætla Guði það að þegar Jesús var flæmdur úr námskrá skólanna hafi hann gefið myglusveppnum lausan tauminn í húsnæði skólanna og hleypt, eftir því sem sumir segja, kláminu inn í námsefni barnanna. Tímasetningin virðist þó passa.
Biblían segir að þegar menn hverfi frá Guði þá bjóði þeir andaverur vonskunnar í himingeimnum velkomnar, sem er grafalvarlegt mál og ekkert fyndið við það. Þegar Jesú Kristi er ekki treyst til að uppfræða börnin er eitthvað mikið að í mannlífinu og eins og ryðið eyðir járni og myglusveppurinn herjar á húsveggi vegna hirðuleysis, eins er sálarlífinu hætta búin þegar menn ofmetnast og telja sig vita betur en Guð sköpunarinnar.
Ég bið Íslendingum Guðs friðar. Höfundur er gamall húsasmiður. Hægt er að lesa grein Ársæls á vefnum mbl.is