,,No comment“ stemmning meirihlutans er auðvitað bara della“
,,Hér er frétt um þá frumkvæðisathugun sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur hafið að mínu frumkvæði og með stuðningi Andrésar Inga (Andrés Ingi á þingi) og Guðmundar Andra (Guðmundur Andri Thorsson).
Mér finnst jákvæð þróun að meirihlutingmaður taki að sér að leiða eftirlitsrannsókn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Það setur jákvætt fordæmi fyrir þingmenn í meirihluta að hafa virkt aðhald og eftirlit með verklagi sinna ràðherra.
Þessi ,,no comment“ stemmning meirihlutans með tilvísan í einhverja hlutleysiskröfu er auðvitað bara della. Það er ekki hlutverk þingmanna að vera hlutlausir og þegja af sér allar spurningar fjölmiðla í því skjóli.
Við erum þingmenn, ekki dómstóll og ekki stjórnsýsla og við eigum og megum hafa skoðanir á álitamálum sem þessum.
Frumkvæðisathugun er formleg ákvörðun nefndar um að hefja athugun à álitamàli.
Hún setur einfaldlega formlegan farveg fyrir þá upplýsingaöflun og fundi sem Kolbeinn kvartar yfir að hafi ekki átt sér stað fyrir ákvörðunina.“
Hefur þú áhuga á að sjá Fréttatímanum vaxa og dafna áfram sem frjálsan og óháðan? – Með því að styrkja Fréttatímann mánaðarlega eða einu sinni, stuðlar þú að því.