• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

  • Hreinsunarstarf gengur vel á Seyðisfirði
  • Áfram í gildi hættustig almannavarna á Seyðisfirði.

Samráðsfundur lögreglunnar á Austurlandi, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Múlaþings var haldinn í gær.  Þar var fjallað um hreinsunarstarf, vöktun og mælingar á upptakasvæðum skriðanna og forgangsmál næstu vikna.

Hreinsunarstarf hefur gengið vel og er nú búið að opna leið í gegnum stóru skriðuna sem féll 18. desember. Á áhrifasvæði hennar eru stórar vinnuvélar í notkun og því varhugavert að vera á ferðinni þar nærri. Ýmis hætta getur auk þess falist í og við skriðuna eins og brak úr byggingum og annað lauslegt. Af þeim sökum er óviðkomandi umferð óheimil á því svæði samkvæmt ákvörðun lögreglustjórans á Austurlandi.

Ekki hefur orðið vart við skriðuföll úr hlíðinni ofan Seyðisfjarðar frá því fyrir jól.  Vöktun hlíðanna ofan bæjarins hefur þegar verið efld umtalsvert frá því sem var áður en skriðurnar féllu. Fylgst er með hreyfingu jarðlaga sem og vatnshæð í borholum í hlíðinni. Ekki hafa mælst merkjanlegar hreyfingar né óeðlileg vatnshæð. Unnið er að því að auka tíðni og nákvæmni mælinga enn frekar með sjálfvirkum búnaði. https://www.vedur.is/um-vi/frettir/nyr-bunadur-til-ad-vakta-skriduhaettu-a-seydisfirdi-fluttur-til-landsins

Um helgina verður gert hlé á hreinsunarstörfum en veðurspá er slæm og búist er við norðvestan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi, stórhríð á köflum. Lélegt skyggni og ekkert ferðaveður. Áfram er í gildi hættustig almannavarna á Seyðisfirði vegna skriðufalla sem féllu fyrir jól.

Þjónustumiðstöð almannavarna verður opin í Herðubreið á Seyðisfirði í næstu viku en einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sey@logreglan.is og hringja í 839 9931 utan opnunartíma. 

 

Umræða
Share9Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • LEB telur gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Þjófur sendur úr landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Kvika banki hagnaðist um rúmlega 6,2 milljarða – ,,bankinn hefur getu til að skila 15 milljörðum króna til hluthafa“

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?