26 ára norskur maður er sakaður um að hafa brotið gegn yfir 300 drengjum á táningsaldri. Maðurinn sem samkvæmt norskum fjölmiðlum er sagður vera knattspyrnudómari, notaði spjallþræði á netinu og þá aðallega Snapchat, til þess að nálgast drengina að sögn NRK.
.
Þar þóttist hann vera stúlka og lofaði drengjunum nektarmyndum af sér, ef þeir myndu fyrst senda sér myndbönd af þeim sjálfum, stunda sjálfsfróun. Lögreglan fann yfir 16 þúsund slík myndbönd í tölvu hans en. Samkvæmt embætti saksóknara í Ósló, þá byrjaði maðurinn að áreita drengi árið 2011 og um er að ræða lang umfangsmesta kynferðisbrotamál í sögu landsins en það teygir sig einnig til fleiri landa.
.
Hann hótaði drengjunum því að birta myndböndin þeirra opinberlega á netinu ef þeir myndu ekki senda honum fleiri upptökur. Þeir voru allir á aldrinum 9 til 21 árs og eru frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Nokkrir þeirra hafa sakað manninn um nauðgun. Guro Hansson Bull, ríkissaksóknari í Noregi, segir þetta vera stærsta kynferðisbrotamál norskrar réttarsögu.
Guro Hanson Bull segir jafnframt að þetta mál sýni það vel, hversu erfitt það sé fyrir börn og þá sérstaklega drengi, að tilkynna um kynferðisbrot. Lögmaður mannsins segir hann játa sök í flestum meginatriðum, en að hann eigi á síðari stigum, eftir að svara fyrir hverja ákæru fyrir sig. Hann hefur verið í varðhaldi frá árinu 2016 og réttarhöld í máli hans hefjast 2019.
Umræða