,,Nú eru launahækkanir helsta orsök hækkunar húsnæðisverðs. Ekki er einu orði beint að framboðsskorti. Eftir að hafa hlustað á rök peningastefnunefndar fyrir 0,75% hækkun stýrivaxta er ég engu nær.“ Segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
,,Helstu rökin fyrir hækkun stýrivaxta voru miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði á hrávöru og olíu, flutningum, og staðan á húsnæðismarkaði.
Nú stefnir í að arðgreiðslur fyrirtækja, og uppkaup eigin bréfa fari um og yfir 200 milljarða á þessu ári.
Arðsemiskrafa bankanna og hagnaður þeirra er í hæstu hæðum.
Það verður fjör hjá okkur í haust þegar sérhagsmunaöflin og talsfólk þeirra byrja að predika ábyrgðar og stöðugleikasálmana yfir launafólki.“ Segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR um vaxtahækkun Seðlabankans og má þar lesa á milli línanna að það stefni í hörð átök á vinnumarkaði vegna vaxtahækkana og vaxandi verðbólgu.
Umræða