Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt, frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Einnig hafa verið lögð fram í gáttinni drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun.
Bætt og skilvirkari þjónusta með sameinaðri stofnun
Markmið sameiningar Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs er að einfalda þjónustu við atvinnulíf, fækka samskiptaleiðum og skýra ferla með öflugri og skilvirkari stofnun sem mun hafa starfsstöðvar víða um land. Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að matvælaeftirlit sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga flytjist til nýrrar sameinaðrar stofnunar.
Fyrirhuguð sameining er í samræmi við niðurstöður fýsileikagreiningar sem sýndi fram á tækifæri til aukinnar samþættingar, samstarfs og styrkingar stjórnsýslu og faglegra stoða eftirlitsins. Verðlagsstofa skiptaverðs verður þannig hluti af nýrri stofnun en heldur ríku sjálfstæði í sínum kjarnaverkefnum.
Með frumvarpinu er einnig brugðist við ábendingum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að efla skilvirkni opinbers eftirlits í samræmi við EES-reglur. Gert er ráð fyrir að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2027.
Lagarammi um Hafrannsóknastofnun styrktur
Markmið frumvarps til breytingar á lögum um Hafrannsóknastofnun er að skýra og styrkja þann lagaramma sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og gera stofnuninni þar með betur kleift að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með lögum.
Tildrög frumvarpsins má að hluta rekja til ábendinga og gagnrýni á rekstur og stjórnsýslu stofnunarinnar sem hafa komið fram í úttekt og greiningarvinnu ráðuneytisins á stofnuninnisem og skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

