Frá síðustu úthlutun hefur mikill árangur náðst í að auka og bæta við innviði um land allt og þannig getu þeirra svæða sem um ræðir til að taka við ferðmönnum. Þar má nefna áframhaldandi uppbyggingu gönguleiða, útsýnispalla og bílastæða innan Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls, viðgerðir á hleðslum við Snorralaug í Reykholti og smíði á stigum og pöllum við Stuðlagil, sem og við Hornbjargsvita til að bæta öryggi ferðamanna og vernda náttúru auk fjölda annarra verkefna.
Gert er ráð fyrir um þriggja milljarða framlagi til þriggja ára, sem rennur til verkefnaáætlunar Landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2020-2022. Sem fyrr er áhersla lögð á að um sé að ræða heildstæða nálgun í gegnum svæðisheildir en einnig á annars konar verkefni s.s. til að auka fagþekkingu, bæta hönnun og samræmingu. Alls hafa verið skilgreindir 119 ferðamannastaðir, ferðamannaleiðir og ferðamannasvæði, þar sem aðgerðir hafa þegar hafist fyrir tilstuðlan landsáætlunar eða eru fyrirhugaðar til og með ársins 2022.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir styrki til 33 verkefna um allt land árið 2020 sem nema samtals 501,5 milljónum króna. Hæstu styrkirnir að þessu sinni eru styrkir til byggingar útsýnispalls á Bolafjalli í Bolungarvíkurkaupstað, áframhald uppbyggingar við Stuðlagil beggja vegna árinnar og bætt fráveitumál í Hrafntinnuskeri. Önnur verkefni sem fá hærra en 15 milljón króna styrki eru bætt salernisaðstaða við Aldeyjarfoss og bygging skýla til náttúruskoðunar við fuglastíg á Norðausturlandi.
Þá hefur undanfarin ár verið lögð aukin áhersla á að efla heilsárs- og árstíðabundna landvörslu enda gegna landverðir mikilvægu hlutverki fyrir verndun náttúru, svo og fræðslu og upplifun ferðamanna á friðlýstum svæðum.
,,Ef við horfum nokkur ár aftur í tímann þá bárust okkur reglulega fréttir af bráðum úrlausnarefnum vegna álags á náttúruna af völdum ferðamanna á ferðmannastöðum, oft innan friðlýstra svæða. Ég tel að við höfum náð botninum í þessu og tekist, hratt og örugglega, að snúa þessari þróun við sem skilar sér í frekari vernd náttúrunnar og jákvæðari upplifun ferðamanna. Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða eru gríðarlega mikilvæg og jafnframt nauðsynleg tæki til þess að taka á þessum málum með markvissum hætti,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
„Það er ánægjulegt að fylgjast með því hvernig það kerfi um náttúruvernd og uppbyggingu innviða sem var búið til með stofnun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða heldur áfram að styrkjast og skila árangri. Það er lykilatriði fyrir þá samhæfðu ferðaþjónustu byggða á grunni gæða sem framtíðarsýn okkar, um að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030, byggir á,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
- Glærukynning ráðherranna
- Úthlutun Framkvæmdasjóðs ferðamanna
- Vefsjá Ferðamálastofu– yfirlit yfir styrki Framkvæmdasjóðs ferðamanna og Landsáætlunar
- Verkefnaáætlun Landsáætlunar 2020-2022
- Myndbandið Landvarðalíf
- Upptaka frá kynningarfundinum
Umræða