Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Fjölmenningarsetur hafa opnað vefsíðu þar sem hægt er að skrá leiguhúsnæði vegna komu flóttafólks frá Úkraínu.
Ef þú átt hús, íbúð eða annað viðeigandi húsnæði fyrir flóttafólk sem kemur til Íslands á flótta undan núverandi ástandi í Úkraínu, getur þú skráð það á síðunni.
Í fyrsta skrefi er einungis leitað að húsnæði en þeim sem hafa eitthvað annað fram að færa sem nýst getur fólki í Úkraínu er bent á hjálparstofnanir.
Hér getur þú skráð leiguhúsnæði fyrir flóttafólk frá Úkraínu.
Umræða