Á sjóstanga veiðum í vikunni, fékk Bjørn Ingvaldsen í Noregi þorsk á stöngina sem að reyndist vera 12 kg. eða um 25 pund
Þorskurinn tók makríl beitu. Veiðimaðurinn varð ánægður með aflan, en fannst eitthvað undarlegt við útlínur þorsksins.
,,Ég hélt að hann væri með hrogn inn í sér“ segir Ingvaldsen.
Hann skar fiskinn upp og var mjög hissa vegna þess að í maganum var stór gosflaska sem að þorskurinn hafi gleypt. ,, Þetta var hræðileg sjón og ég ákvað að pósta myndinni á Facebook til þess að fólk áttaði sig á því að það væri ekki í lagi að henda rusli í sjóinn“
Flaskan var fjarlægð úr fisknum og hann hreinsaður og hafður í kvöldmatinn en Ingvaldsen sagði að fiskurinn hefði verið bragðvondur og ljóst að hann hefði ekki fengið næga næringu og líklega hefur flaskan valdið því.
Sjávarlíffræðingur Per Erik Schulze sagði að ,,plast væri mengunarefni sem að þarf að koma í veg fyrir að komist í umhverfið.“ segir hann.
Samkvæmt tölum frá umhverfissviði Sameinuðu þjóðanna enda 8 milljónir tonna af plasti í sjónum árlega. 80% af þessu plasti stafa af starfsemi og iðnaði í landi.
Árið 2050 munu vísindamenn finna meira plast en fisk í sjónum, samkvæmt skýrslu frá World Economic Forum Foundation.