Harður árekstur varð fyrir skömmu síðan á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði
Loka varð Reykjavíkurvegi til suðurs þar sem að tveir bílar sem að skullu saman og enduðu á grindverki við hús við veginn, lokuðu götunni algerlega. Ekki er vitað um tildrög slyssins en báðir bílarnir snúa á móti akstursstefnu sem liggur niður Reykjavíkurveginn.
Talsvert var af fólki á svæðinu þegar að blaðamann bar að og því var auðsjáanlega mikið brugðið við áreksturinn og þær óvenjulegu aðstæður sem að voru á vettvangi.
Umræða