Norðurflug Helicopter Tours hefur fengið nýja viðbót í þyrluflota sinn. Nýja þyrlan er af gerðinni Airbus EC130 og er sú eina sinnar gerðar hér á landi.
Norðurflug Helicopter Tours var stofnað í febrúar 2006 og er elsta og stærsta einkarekna þyrlufélag landsins. Fyrir á félagið fjórar þyrlur, eina Bell Jetranger, tvær Astar A 350 og eina Dauphin. Þessi endurnýjun er í takti við markmið félagsins um samfellda endurnýjun eins og aðstæður heimila hverju sinni.
Airbus vélin er sérlega glæsileg 6 sæta vél. Sætin eru öll framvísandi og leðurklædd og rúðurnar stórar til að tryggja einstakt útsýni. Utan einstaks útsýnis eru Airbus EC130 hljóðlátar og rúmgóðar en einstök hönnun þeirra tók mið af því að hámarka þægindi farþega, ásamt því að lágmarka ónæði annarra.
Þessar Airbus þyrlur eru vinsælustu þyrlur heims til útsýnisflugs og því afar ánægjulegt að nú sé komin ein slík til landsins. Markmiðið með kaupunum er að bjóða viðskiptavinum Norðurflugs þá bestu þyrlu sem völ er á til að þjónusta þá með sem bestum hætti.
Þyrlurekstur hefur þróast afar mikið á Íslandi seinasta áratugin og mikil þekking hefur safnast saman hérlendis. Fyrstu þyrlurnar komu til landsins um 1940 og voru þá ætlaðar til björgunar á sjó.