• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 7. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Veður: Sumar og vetur berjast um völdin næstu daga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. maí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Sumar og vetur berjast um völdin í veðrinu á landinu næstu daga. Fremur hægur vindur og sums staðar skúrir í dag, en kólnar með rigningu eða slyddu um landið norðvestanvert í stífri norðaustanátt. Norðaustanáttin ræður síðan ríkjum á landinu á morgun og verður vetrarlegt um að lítast norðanlands með snjókomu eða slyddu á köflum. Sunnantil á landinu nær sólin að hlýja okkur, sérstaklega þar sem dálítið skjól er fyrir norðanáttinni. Kólnar þó smám saman þegar líður á vikuna með éljum og frosti fyrir norðan. Úrkomulítið sunnan heiða og heldur hlýrra í veðri. Það er síðan ekki fyrr en á sunnudag að norðanáttin gefur eftir fyrir suðaustlægum áttum með hlýnandi veðri.

Veðuryfirlit
600 km SV af Reykjanesi er allvíðáttumikil 984 mb lægð sem þokast NNA. Yfir S-Skandinavíu er 1032 mb hæð sem fer hægt A.

Veðurhorfur á landinu
Fremur hæg breytileg átt og dálitlar skúrir í dag og hiti 4 til 11 stig. en norðaustan 8-13 um landið norðvestanvert með rigningu eða slyddu og kólnar í veðri, en heldur hvassara og dálítil snjókoma á Vestfjörðum í kvöld. Norðaustan 8-15 í nótt og á morgun. Snjókoma eða slydda með köflum um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Lengst af þurrt sunnantil á landinu og milt í veðri, en dálitlar skúrir eða slydduél síðdegis og kólnar.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg breytileg átt og stöku skúrir. Fremur hæg norðlæg átt með kvöldinu og léttir til. Norðan 5-13 og lengst af bjartviðri á morgun, en stöku skúrir annað kvöld. Hiti 5 til 11 stig að deginum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðaustan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma með köflum, hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur sunnan heiða og skúrir eða slydduél, einkum síðdegis og hiti 5 til 11 stig.

Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt 8-13 og snjókoma eða slydda með köflum, en rigning á láglendi syðst. Hiti 0 til 5 stig að deginum.

Á fimmtudag:
Norðaustan 8-15 m/s um landið norðvestanvert, en annars hægari vindur. Viða él, en úrkomulítið suðaustanlands. Hiti um frostmark, en hiti að 5 stigum sunnanlands að deginum.

Á föstudag:
Norðlæg átt og stöku él, en víða þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Vægt frost, en hiti 0 til 5 stig sunnantil.

Á laugardag:
Útlit fyrir austlæga átt og hlýnar lítið eitt. Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands, en annars úrkomulítið.

Á sunnudag:
Suðaustlæg átt, vætusamt og hlýnandi veður.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Seðlaban­kinn hætt­ir gjal­dey­r­is­kaup­um

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?