• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 2. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Launakostnaður er hár á Íslandi

ritstjorn by ritstjorn
9. maí 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
0
Launakostnaður er hár á Íslandi

Anna Hrefna Ingimundardóttir. Aðstoðarframkvæmdastjóri SA, skrifar

Share on FacebookShare on Twitter

Kastljósinu beint að staðreyndum

Anna Hrefna Ingimundardóttir. Aðstoðarframkvæmdastjóri SA, skrifar
Efnahagsmál varða okkur öll og því er mikilvægt að umræða um þau byggi á traustum grunni. Aftur á móti gætir oft mikils misræmis í almennri umræðu um efnahagsmál. Túlkanir álitsgjafa geta verið æði mismunandi og umræðan því þvælst. Til að átta sig á heildarmyndinni og skoða hversu vel okkur gengur í efnahagslegu tilliti getur verið gott að skoða gögn í alþjóðlegum samanburði. Þá er mikilvægt að gagnanna sé aflað með samræmdum hætti og þau svo túlkuð á viðeigandi hátt.

Launakostnaður á vinnustund er hár á Íslandi

Eurostat birti nýlega gögn um launakostnað í Evrópu á árinu 2022. Til að bera saman launakostnað milli þessara landa þarf að styðjast við sameiginlegan mælikvarða og er jafnan talað um launakostnað á hverja vinnustund að meðaltali í evrum. Þegar launakostnaður er metinn er horft til launa og launatengdra gjalda í senn til að fá samanburðarhæfa mynd af heildarkostnaði atvinnurekenda við starfsfólk.

Kostnaðurinn var mestur í Noregi, 56 evrur á klukkustund en 48 evrur á Íslandi og að meðaltali 31 evra í ríkjum Evrópusambandsins. Þess ber að geta að Sviss vantaði í gögnin en telja má líklegt að Svisslendingar séu með einna mestan launakostnað meðal evrópskra þjóða. Á þennan mælikvarða, og miðað við nýjustu fáanlegu gögn, má vera ljóst að launakostnaður er sérlega hár hér á landi rétt eins og í öðrum Evrópulöndum þar sem velmegun er mikil.

Meðalárslaun einna hæst á Íslandi þótt leiðrétt sé fyrir verðlagi

Hluti skýringarinnar á miklum launakostnaði hér á landi felst auðvitað í því að laun eru há. Eurostat birtir einnig gögn um meðalárslaun fullvinnandi einstaklinga í þessum sömu ríkjum. Það getur verið gagnlegt að leiðrétta þessi gögn fyrir ólíku verðlagi milli landa til að hægt sé að glöggva sig á því hvað launafólk getur fengið af vörum og þjónustu fyrir launin sín. Er jafnan rætt um kaupmátt í þessu samhengi.

Verðlag á Íslandi er hátt, enda er mikil fylgni milli launa og verðlags í hverju landi, en meðallaun á Íslandi eru meðal þeirra hæstu í Evrópu jafnvel þótt tekið hafi verið tillit til verðlags. Þetta má glögglega sjá í alþjóðlegum samanburði Eurostat þar sem Ísland er í fjórða sæti Evrópuríkja yfir kaupmáttarleiðrétt meðalárslaun, ofar öllum hinum Norðurlöndunum og 40% hærri en í Evrópusambandsríkjum að meðaltali.

Hlutdeild launafólks í verðmætasköpun er mikil

Til að átta sig á því hversu mikið launakostnaður vegur í atvinnurekstri þarf að setja hann í gagnlegt samhengi. Þegar ákvarðanir eru teknar um launasetningu þarf að horfa til þeirra tekna sem reksturinn skapar sem og annars kostnaðar í rekstri sem stendur eftir þegar laun hafa verið greidd, svo sem fjármagnsgjalda, eða fjárfestinga. Við getum horft til landsframleiðslu í þessu samhengi – hún er ákveðinn mælikvarði á þá verðmætasköpun sem fram fer í hagkerfinu, og það sem er þá “til skiptanna” ef svo má að orði komast.

Þegar öll þau laun og launatengdu gjöld sem greidd eru út í hagkerfinu eru skoðuð í samhengi við heildarframleiðsluna má sjá að óvíða rennur stærra hlutfall verðmætasköpunar til launafólks en á Íslandi. Sumir gætu spurt hvort öll verðmætasköpunin ætti ekki að renna beint í vasa launafólks enda sé það vinnandi fólk sem í raun stendur undir allri verðmætasköpun. Hafa ber í huga að fyrirtæki þurfa að standa straum af ýmsum öðrum kostnaði en launakostnaði. Einnig þarf að huga að fjárfestingum í innviðum ásamt nýjustu tækjum og tólum svo hægt sé að undirbyggja hagvöxt framtíðar – sem launafólk mun byggja sínar framtíðartekjur á. Vandséð er að verðmætasköpun væri jafn mikil í dag og raun ber vitni án slíkrar fyrirhyggju.

Lífsgæði byggja á verðmætasköpun

Myndin er skýr. Laun á Íslandi eru með þeim hæstu í heimi og launakostnaður er það einnig. Þetta endurspeglar þá miklu verðmætasköpun sem fram fer hér á landi og hina stóru hlutdeild launafólks í henni. Þegar allt kemur til alls getur hagur landsmanna ekki byggst á neinu öðru en þeim verðmætum sem sköpuð eru í hagkerfinu. Þar er einnig mikilvægt að hafa í huga að lífskjör okkar og afkomenda okkar munu byggja á því hversu vel okkur tekst að fjárfesta í innviðum, nýjustu tækni og hugviti til að framleidd verði enn meiri verðmæti í framtíðinni en í dag. Hér þarf því að finna ákveðið jafnvægi milli launa í nútíð, annars kostnaðar en launa og fjárfestingar sem mun standa fyrir enn betri lífskjörum þegar fram líða stundir.

Discussion about this post

  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?