Laust eftir 20:30 í kvöld barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð. Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn. Tvær þyrlur, TF-LIF og TF-EIR, voru sendar á vettvang.
Alls voru fimm aðilar í flugvélinni og eru allir alvarlega slasaðir.
Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.
Jafnframt hefur viðbragsteymi Rauðakross Íslands verið sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.