• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Hefja byggingu á 124 leigu og búseturéttaríbúðum í Reykjavík

ritstjorn by ritstjorn
9. júní 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur
0
Share on FacebookShare on Twitter

Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag hefja byggingu á 124 leigu og búseturéttaríbúðum á Tangabryggju í Reykjavík
Skóflustunga að 124 nýjum íbúðum sem Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag byggja við Tangabryggju í Bryggjuhverfi Reykjavíkur var tekin í dag kl. 13:30. Byggingarfélagið ÍSTAK mun sjá um byggingu fjölbýlishúsanna. Verkfræðistofan Ferill sá um verkfræðihönnun og arkitektahönnun var í höndum Arkþings. Félögin byggja á sameiginlegum reit en hvort með sínar áherslur, enda Bjarg leigufélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag.
Nú þegar er Bjarg með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur ólíkum stöðum, á Móavegi í Grafarvogi, Urðarbrunni í Úlfarsárdal og Asparskógum á Akranesi. Þá eru framkvæmdir við rúmlega þrjúhundruð nýjar íbúðir komnar vel á veg og rúmlega 500 íbúðir eru í undirbúningsferli. Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins eru því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.
Búseti leggur áherslu á að svara þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hjá félaginu er að finna mikla fjölbreytni í íbúðasamsetningu eftir rúmlega þrjátíu ára starfsemi. Innan samstæðu Búseta eru reknar í dag yfir 1.000 íbúðir og eru nú um 180 íbúðir í byggingu á vegum félagsins. Íbúðirnar sem Búseti byggir nú eru við Keilugranda í Vesturbæ Reykjavíkur, Árskóga í Mjódd og Tangabryggju í Bryggjuhverfinu. Búseti þjónar breiðum hópi félagsmanna með mismunandi þarfir þegar kemur að búsetuformi.
_____________________________________________________________________________________
Bjarg er húsnæðis sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?