Ákærður fyrir manndráp
Héraðssaksóknari hefur ákært Val Lýðsson fyrir manndráp á bænum Gýgjarhóli 2 í Bláskógabyggð aðfaranótt laugardagsins 31. mars 2018. Í ákærunni segir að hann hafi veist með ofbeldi að bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, með þeim afleiðingum að hann lést. Valur var búsettur á Gýgjarhóli en bróðir hans Ragnar var þar í heimsókn. Fjórir einstaklingar gera einkaréttarkröfur í málinu og krefjast 10 milljóna króna í miskabætur, hver fyrir sig. Málið verður flutt fyrir héraðsdómi suðurlands.
Ragnar hlaut alvarlegan höggáverka ofarlega vinstra megin á enni, sem olli sári á hörundi, blæðingu innan í höfuðkúpu og snöggri breytingu á meðvitundarstigi. Af höggáverkanum hlutust einnig ógleði, svimi og uppköst. Þetta leiddi til þess að Ragnar lést af banvænni innöndun magainnihalds.
Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara sló Valur bróður sinn ítrekuðum hnefahöggum í höfuð og líkama, auk þess að sparka og/eða trampa ítrekað á höfði hans og líkama. Af þessu hlaut Ragnar margvíslega dreifða áverka á líkama og höfði.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/04/03/brodirinn-grunadur-um-manndrap-gyjarholi-ii/