Vigfús Ólafsson var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í fimm ára fangelsi í dag, fyrir að hafa orðið valdur að dauða konu og manns, þegar að hann kveikti í húsi sínu við Kirkjuveg á Selfossi í október 2018. Konan sem ákærð var fyrir almannahættubrot í sama máli, var sýknuð og ósannað þótti að konan hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni var gefin að sök í ákæru og var hún því bæði sýknuð af kröfum ákæruvaldsins og bótakröfum á hendur henni var vísað frá dómi.
Vigfús hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því í október og dregst það frá dóminum. Honum er gert að greiða aðstandendum hinna látnu á þriðja tug milljóna króna í miskabætur og allan sakarkostnað. Hann var ákærður fyrir íkveikju og manndráp, en til vara var hann ákærður fyrir íkveikju og manndráp af gáleysi. Dómurinn komst að þeirri niðurstöð að sakfella hann fyrir manndráp af gáleysi.
Í dómsniðurstöðu kemur fram að Vigfús hafi viðurkennt fyrir dómi að hafa fiktað með eld án þess að vita af hverju og segir jafnframt að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendi til þess að Vigfús hafi haft beinan ásetning til að verða fólkinu að bana. Ekki sé útilokað að hann hafi aðeins ætlað að skaða sjálfan sig.
Hann hafi hinsvegar látið undir höfuð leggjast að slökkva í pappakassa sem hann kveikti í og það gáleysi hefði leitt til þess að tvær manneskjur létu lífið í eldsvoða sem hann beri einn ábyrgð á. Þá segir í dómsniðurstöðu að það verði að telja sannað að Vigfús hafi enga tilraun gert til að aðvara fólkið um eldinn og vörn hans um að hann hefði gleymt því að þau væru í húsinu væru haldlaus.